Ofbeldi fyrir fullorðna
Adda Steina @ 21.51 21/12/04
Það er full ástæða til að vekja athygli á fréttum Stöðvar 2 um gróft ofbeldi í tölvuleikjum sem jafnvel eru gefnir börnum í jólagjöf. Sonur minn, 9 ára, kom heim úr bekkjarafmæli um daginn og hafði fengið pizzu og spilað Grand Theft Auto með bekkjarfélögunum.
Hörð viðbrögð foreldranna við þessum upplýsingum settu snáðann í varnarstöðu og hann taldi upp alla bekkjarfélagana sem áttu þennan leik, til staðfestingar því að þetta væri víst í lagi - “allir” ættu hann.
Árni Snævarr gerði eftirminnilega frétt um Grand Theft Auto fyrir einum eða tveimur árum. Ég ætla ekki að rekja þann viðbjóð sem finnst í leiknum en bendi á að hlutskipti spilarans er að vera sá sem brýtur af sér og hann á ýmsa möguleika á að ganga langt í skepnuskap.
Eftir téð afmæli fór ég að fylgjast með þeim tölvuleikjum sem komu inn á heimilið með félögum drengjanna. Þar var það regla frekar en undantekning að þeir væru bannaðir amk innan 15 ára. Í gærkvöldi var svo frétt á Stöð 2 um nýja, ennþá ofbeldisfyllri tölvuleiki, einkum leikinn Manhunt og foreldrar hvattir til að gæta að aldursmerkingum á tölvuleikjum sem keyptir væru fyrir börn.
Í kvöld var sagt frá því á Stöð 2 að leikurinn Manhunt hefði verið tekinn úr fjölda verslana í Bretlandi í fyrra eftir að gróft morð á unglingi var talið framið af öðrum unglingi undir áhrifum frá þessum leik.
Margir foreldrar hafa tekið eftir því hvað börn verða pirruð og uppstökk af of miklum tölvuleikjum. Það er full ástæða til að gæta þess að þau verði ekki ofbeldismenn líka.
Carlos Ferrer @ 21/12/2025 23.14
Quentin Tarrantino á að hafa sagt að mikið hasarmyndagláp geri fólk ekki að glæpamönnum en geti gert það að kvikmyndagerðarfólki sem gerir hasarmyndir. Veit ekki hvort það er satt en vera má að mikill tölvuleikur sé til vitnis um mikinn tíma sem börn geti átt heima án eftirlits. Að þessu sögðu játa ég að ég sakna bernskunnar í Háaleitinu þegar Síðumúlinn var að byggjast. Það voru ófáar stundir sem fóru þar í leik með spýtur, pappa og eldfæri … frelsið var yndislegt.