Blogg fjölskyldan
Adda Steina @ 22.17 9/11/06
Nú er Þórir farinn að blogga á Vísisblogginu. Ég dreif mig að setja upp blogg þar líka þó að ég kunni nú betur við þessa síðu - Ekki að ég hafi neitt sérstakt á móti frambjóðendum sem ég auglýsi á BlogCentral en mér finnst einhvern veginn að ég verði að kjósa þá fyrst þeir eru á minni síðu og það vekur angist..
Nú eru þetta aðallega Samfylkingarmenn en hvað ef Sjálfstæðismenn fara líka að auglýsa á blogginu mínu - eða jafnvel Framsóknarmenn. Þá yrði ég líklega að loka blogginu fram yfir prófkjör.
Árni Svanur @ 9/11/2026 23.18
Gaman að Þórir sé farinn að blogga og líka gott að þú sért byrjuð aftur að færa til annáls - sem er auðvitað hið besta mál.