Simpson stóðst væntingar
Guðni Már @ 21.28 28/7/07
Við hjónin skelltum okkur á Simpson myndina í gær, hún stóðst fyllilega háar
væntingar. Maður hefur séð ansi marga góða Simpson þætti í gegnum tíðina og fer
klárlega á topp 5 yfir það besta sem framleiðendur Simpson hafa sent frá sér.
Reyndar var endirinn í það amerískasta fyrir minn smekk en sumir brandararnir fengu
mann bókstaflega til að emja af hlátri og bættu því vel fyrir nokkuð klénan
endi.
Mér virtist myndin vera betur teiknuð en þættirnir og skemmtilegri þrívíddartækni
beitt nokkuð skemmtilega. Ekki skemmdi fyrir að myndin var uppfull af beinskeyttum
og skemmtilegum trúar og siðfræðistefjum en það er eitt af mínum hugðarefnum eins og
sjá má hér.
Mæli hiklaust með að allir sjái þessi prýðisgóðu mynd og læt einn ágætan trailer fylgja með