ólafur.annáll.is

AnnállPrívatStjórnmálTrú og kirkjaÝmislegt

« Fram á ritvöllinn á ný · Heim · Matthías Ásgeirsson fer með ósannindi »

Að ritskoða athugasemdir

Ólafur Jóhann @ 22.13 23/6/08

Mér varð litið inn á heimasíðu formanns Vantrúarfélagsins í dag og sá þá hvar hann var að kvarta yfir ritskoðun kollega míns, séra Svavars á ritskoðunum á athugasemdum. Mér þótti þessar athugasemdir formannsins sérlega skondnar í ljósi þess að á sínum tíma bannaði hann mér að gera athugasemdir á síðuna sína. Jah, margt er í heiminum hverfult!

url: http://olafur.annall.is/2008-06-23/ad-ritskoda-athugasemdir/

Athugasemdir

Fjöldi 18, nýjasta neðst

Matti @ 23/6/2026 22.32

Af hverju vísar þú ekki á færsluna? Getur verið að það sé vegna þess að ég lokaði fyrir athugasemdir þínar í nokkrar klukkutíma og tók það fram fyrirfram?

Ég hef lokað á aðgang þinn að athugasemdum, opna aftur fyrir það í kvöld þegar ég er búinn í vinnunni.

Ólafur @ 23/6/2026 22.37

Þú ert broslegur Matti. Fyrst þú hafðir ekki tíma til að svara, var þá nauðsynlegt að loka aðgangnum…- heldurðu að ég hefði þá farið að rífast við sjálfan mig.

Ekki að þetta skipti nokkru máli núna, en þetta lýsir ákveðnu viðhorfi!

Matti @ 23/6/2026 22.44

Ertu virkilega að halda því fram að þetta hafi á einhvern hátt verið sambærilegt við það að séra Svavar lokar alfarið á mínar athugasemdir? Af hverju vísaðir þú ekki á færsluna? Finnst þér heiðarlegt að setja þetta svona fram án þess að fólk geti séð hvað raunverulega átti sér stað? Gátu lessendur þínir vitað að um nokkurra klukkustunda lokun var að ræða?

Ég hvet fólk til að lesa umræðuna.

Matti @ 23/6/2026 22.44

Og hvað er broslegt við svar mitt?

Ólafur @ 23/6/2026 22.48

Af hverju svararðu ekki spurnigunni minni… hélstu virkilega að ég hafði farið að rífast við sjálfan mig :-)

Matti @ 23/6/2026 22.53

Finnst þér þetta á einhvern hátt sambærilegt. Í athugasemd minni tók ég fram að þú gætir komið aftur það kvöld og haldið áfram. Var einhver sérstök ástæða fyrir því að þú gerðir það ekki? Þess má geta að allt í allt var lokað fyrir athugasemdir frá þér í klukkutíma og tuttugu mínútur eins og fólk getur séð ef það skoðar þessa umræðu

Séra Svavar hefur lokað alfarið á mig án nokkur tilefnis og svarar ekki einu sinni tölvupósti mínum þar sem ég spyr út í málið.

Á hvaða hátt er þetta sambærilegt?

Matti @ 23/6/2026 22.55

Til að útskýra fyrir lesendum vil ég taka fram að alfarið var lokað fyrir athugasemdir við þessa tilteknu færslu rúmu ári eftir síðustu athugasemd. Þá lokaði ég fyrir athugasemdir á öllum gömlum færslum til að minnka athugasemdaspam.

Ólafur @ 23/6/2026 22.55

Þú ert svo laginn við að koma þér hjá því að svara spurningunni!
Það er kannski til lítils að vera að ræða þessi mál!

Matti @ 23/6/2026 22.58

Ha?

Ertu að þykjast vera tregur? Svarið var hér:

Í athugasemd minni tók ég fram að þú gætir komið aftur það kvöld og haldið áfram. Var einhver sérstök ástæða fyrir því að þú gerðir það ekki?

Jón Stefánsson @ 24/6/2026 00.19

Þetta þykir mér undarleg samlíking og enn undarlegri sett fram. Eins og Matti bendir á þá kemur fram í þessum örfáu athugasemdum á síðunni hans að hann ætlaði að loka fyrir comment hjá þér í nokkrar klukkustundir til að hann gæti einbeitt sér í vinnunni (ég geri ráð fyrir því að það sé vegna þess að þegar maður veit af “pósti” til sín þá er erfitt að hugsa um nokkuð annað).

Ekki get ég verið sammála þér um að þessi tvö dæmi sem þú tínir til séu sambærileg: Dagspartur við eina færslu vs Lokað allan sólarhringinn, alla daga ársins við allar færslur. Glerbrot í ilina vs fótur í drifskaft.

Þórður Ingvarsson @ 24/6/2026 01.06

Ólafur, þú ert aumkunarverður.

Gerirðu í því að vera svona ómerkilegt fífl?

Ólafur Jóhann @ 26/6/2026 11.40

Jæja drengir!
Ég má nú í upphafi til með að dást að málefnalegum athugasemdum ritstjóra Vantrúar - hugsa að ég þyrfti nú að færa þetta á spjallið ef því væri til að dreifa!

En jú Matti, það er sannarlega rétt hjá þér að það er ekki eins að vera alveg útilokaður frá því að geta sett inn athugasemdir eða loka tímabundið. Hins vegar er í báðum tilfellum er um ákveðna ristjórn að ræða og inngrip inn í samræðurnar á athugasemdakerfið. Að sjálfsögðu hafa menn sinn hátt á því og það er hið besta mál, en ef menn beita þessu bragði, geta þeir tæpast að það sé notað á þá, þrátt fyrir að það sé í lengri tíma.

En skyldi nokkurn undra að menn nenni að ræða við Vantrúarmenn, þegar búast má við slíkum athugasemdum eins og ristjóri Vantrúar setur hér að ofan?

Matti @ 26/6/2026 12.51

Hins vegar er í báðum tilfellum er um ákveðna ristjórn að ræða og inngrip inn í samræðurnar á athugasemdakerfið.

Hvað bendir til þess að ég hafi nokkuð á móti ritstjórn á athugasemdum? Ég tel meira að segja alveg réttlætanlegt að loka alfarið á athugasemdir ákveðinna einstaklinga og hef gert það á Vantrú. Þeir fá aftur á móti að tjá sig á spjallborði okkar.

Að sjálfsögðu hafa menn sinn hátt á því og það er hið besta mál, en ef menn beita þessu bragði, geta þeir tæpast að það sé notað á þá, þrátt fyrir að það sé í lengri tíma.

Þetta er glórulaust. Fullkomlega glórulaust. Ef ég loka á þig í tæpar áttatíu mínútur fyrir tæpum fimm árum get ég ekki kvartað undan því að séra Svavar Alfreð lokar alfarið á mig og svarar ekki einu sinni tölvupósti þar sem ég spyr hann út í málið. Þetta er ekki “sama bragð” Ólafur.

Hvað er þá svona skondið við athugasemdir mínar um ritskoðun Svavars?

Eftir stendur að bloggfærsla þín er ákaflega villandi, beinlínis röng. Þú blekkir lesendur með því að segja bara hálfa söguna, vísa ekki á umræðuna og líkja saman ósambærilegum aðgerðum. Þú gast ekki kommentað á mína síðu í tæpar áttatíu mínútur og þú ert enn að “væla” útaf því næstum fimm árum síðar. Hvernig ætli viðbrögð þín yrðu ef ég myndi loka alfarið á þig?

Gaman að sjá þig svo nota sárindarökin. Ritstjórinn var vondur við þig. Formaðurinn hefur samt verið óþarflega góður við þig hér og ekki hefur þér gengið vel að ræða við hann.

Þú verður “fínn” prestur.

Ólafur Jóhann @ 26/6/2026 13.08

Nú fyrst þú telur það réttlætanlegt að loka á athugasemdir ákveðinna einstaklinga, yfir hverju ertu þá að kvarta?

Ég tek það ekki nærri mér þó menn eigi sér ekki önnur rök en að kalla mig fífl eða öðrum ónefnum eins og ykkur vantrúarmönnum er bísna tamt að gera. Þau orð dæma sig sjálf!

Matti @ 26/6/2026 13.35

Ég er að “kvarta” (hvar kvarta ég, er ég ekki bara að segja frá þessu) vegna þess að það eru engar málefnalegar forsendur fyrir þessu banni hjá séra Svavari.

Erum við þá ekki nokkuð sammála um að þessi bloggfærsla er bæði villandi og óheiðarleg?

Ólafur Jóhann @ 26/6/2026 16.32

Voru einhverjar málefnalega forsendur þegar þú lokaðir á minn aðgang á sínum tíma?

Svo ég svari spurningu þá er ég ekki sammála því að blogfærslan sé villandi eða óheiðarleg!

Matti @ 26/6/2026 19.17

Já, þú talaðir niður til mín og ég hafði tíma til að standa í stappi við þig akkúrat þá stundina. Eftirá séð var þetta óþarfi hjá mér, enda entist bannið í tæpar áttatíu mínútur (svo ég endurtaki það enn og aftur).

Ekki villandi eða óheiðarleg.

“á sínum tíma bannaði hann mér að gera athugasemdir á síðuna sína”

Nei, þetta er alls ekkert villandi!

Þessir prestar.

Þórður Ingvarsson @ 1/7/2026 23.44

Já, veistu. Vika liðinn frá minni athugasemd og ég sé ekki betur enn að hún standi ágætlega.


© ólafur.annáll.is · Færslur · Ummæli