Indjáninn
Las í Fréttablaðinu í vikunni að Jón Gnarr hefði selt kvikmyndarétt af bók sinni Indjáninn. Þá rann upp fyrir mér að Guðni Már og Ásdís gáfu mér þessa bók í jólagjöf, en ég hafði einhverra hluta vegna aldrei lesið hana. Ég dreif mig því í því og langar mig til að hvetja alla til að lesa bókina, hún er stórskemmtileg skálduð ævisaga höfundarins og segir frá æsku hans á spaugilegan hátt. Það er þó alvarlegur undritónn í bókinni, sem gerir bókina enn betri og áhugaverðari.
Minn kæri vinur Guðmundur Örn Jónsson var í dag valinn næsti prestur okkar Eyjamanna. Það er mikið fagnaðarefni að fá Guðmund í þjónustuna, því ég þekki hann vel og veit að hann hefur metnað og góðan mann að geyma. Ég óska honum og fjölskyldunni innilega til hamingju með þetta og hlakka til að sækja þau hjón heim á prestssetrið í minni næstu eyjaferð minni. Það er óhætt að segja að við Eyjamenn eigum góða presta og verður gaman að taka þátt í helgihaldinu!
Sr. Þorvaldur Víðisson prestur okkar Eyjamanna ætlar að kveðja söfnuðinn í messu n.k. sunnudag. Hann mun láta af störfum um mánaðarmótin og taka við stöðu æskulýðsfulltrúa Dómkirkjunnar. Við Eyjamenn sjáum á eftir Þorvaldi því hann hefur verið mikill og góður þjónn safnaðarins og við þökkum fyrir hans góðu þjónustu. Sjálfur hef ég átt mikil og góð viðkynni við sr. Þorvald og eru þau öll hin bestu. Ég vona Guð og gæfan fylgi honum í nýjum störfum um leið og ég þakka honum fyrir þjónustuna við Ofanleitissókn.