ólafur.annáll.is

AnnállPrívatStjórnmálTrú og kirkjaÝmislegt
  • Annálar

  • Tenglar

  • Eldri færslur

  • Leit

Að lokinni prestastefnu!

Ólafur Jóhann @ 14.11 27/4 + 13 ath.

Undanfarna daga hef ég átt góða daga norður á Húsavík, hef þar setið á fundum með mörgum kirkjunnar þjónum sem hafa átt þar gott samtal um ýmis mál, þar á meðal um málefni samkynhneigðra sem hefur fengið gríðarlega athygli (og fremur neikvæða) í fjölmiðlum auk þess sem bloggarar eru heitir um þessi málefni.
Áfram…

Auðkennislyklar

Ólafur Jóhann @ 13.00 20/4 + 2 ath.

Í fyrstu þótti mér sniðugir þessir auðkennislyklar frá bönkunum. Þeir juku öryggið til mikilla muna og eru einfaldir í notkun. Smávegis aukavinna við að komast inn í heimabankann kom ekki að sök. Ég hef hins vegar skipt um skoðun!
Áfram…

Frábær fyrsti sumardagur

Ólafur Jóhann @ 19.30 19/4 + 2 ath.

Gleðilegt sumar. Sumarið heilsar á ánægjulegan hátt, með björtu sólskini, logni en þó er enn svolítið kalt úti. Þetta hefur verið mér afar ánægjulegur dagur.
Áfram…

Menning

Ólafur Jóhann @ 13.00 18/4

Í gærkvöldi sótti ég tónleika sinfóníulhómsveitar unga fólksins sem haldnir voru í Langholtskirkju. Ég vissi satt að segja ekki hverju ég átti von á, nema því helst að sjá unga frænku mína spila á fiðlu ásamt öðrum sem hljómsveitina skipa. Tónleikarnir komu þægilega á óvart, um það bil fimmtíu ungir og gríðarlega efnilegir tónlistarmenn skipa sæti sinfóníuhljómsveitarinnar sem lék fyrir tónleikagesti einhver glæsilegustu tónverk sögunnar, eins og sinfónía nr. 5 í c-moll (oft nefnd örlagasinfónían) eftir Beethoven og fleiri.
Þetta er raunar í fyrsta sinn sem ég heyri örlagasinfóníuna flutta “live” og flutti sveitin þetta verk meistarans óaðfinnanlega. Upphafsstefið þessarar þekktu sinfóníu þekkir hvert mannsbarn en um það sagði höfundurinn sjálfur: ,,Það er engu líkara en örlögin sjálf berji dyra”.

Eftir að hafa hlýtt á þessa góðu tónleika, þá held ég að það sé ljóst að stjórnendur sinfóníuhljómsveitar Íslands þurfi ekki að óttast framtíðina.

Spjallborð - athugasemdir

Ólafur Jóhann @ 18.00 12/4 + 4 ath.

Það er búið að vera líf og fjör í athugasemdakerfinu hér á síðunni. Ég hef mjög gaman af því að fylgjast með því þegar menn ræða málin og hef sjálfur gaman af því að ræða málin á vettvangi netsins á málefnanlegan hátt. Raunar er það nú yfirleitt þannig að ég fylgist með umræðum, án þess þó að blanda mér í umræðurnar, mér finnst hins vegar þurfa að vera ákveðnar grunnreglur í samskiptum á netinu.
Áfram…

Sumarið í nánd?

Ólafur Jóhann @ 18.00 11/4

Nú er rétt rúmlega vika í að við Íslendingar heilsum sumri. Við erum þegar farin að njóta þess að vakna í björtu og sólin sest ekki fyrr en löngu eftir að kvöldfréttartíminn er liðinn. Vorið er minn tími, hef reyndar aldrei þótt gaman á prófatímum, en fyrir og eftir slík tímabil finnst mér alveg sérlega gaman að lifa. Nú um páska fór ég að huga að vorverkunum. Áfram…

Ánægður með kollegana

Ólafur Jóhann @ 13.00 10/4 + 15 ath.

Átta prestar Þjóðkirkjunnar hafa kært sr. Hjört Magna Jóhannsson fyrir ummæli sín í Kompásþætti nú fyrir stuttu. Raunar hefur Hjörtur Magni látið margt út úr sínum munni, sem getur verið erfitt fyrir hann að standa við, og ég er geysilega ánægður að menn skyldu taka sig saman og láta hann svara fyrir þessi orð sín. Nú myndi einhver segja, ,,en hvað með umburðarlyndi og kristinn kærleika, er það kærleikur að kæra?” Áfram…

Góð prédikun

Ólafur Jóhann @ 18.00 9/4

Ég má til með að benda á góða prédikun vinar míns og sóknarprests, Kristjáns Björnssonar: Stórir helgir dagar og fíflalegt bingó

Nú þarf að gefa í

Ólafur Jóhann @ 13.45 9/4 + 11 ath.

Já, nú þarf maður að fara að setja kraft í bloggið, ýmislegt hefði ég viljað sagt hafa um ýmis mál, en aldrei náð að skrifa um það á þessum vettavangi. En nú þarf að gefa í, því í gær opnaði ég bloggsíðu á mbl-blogginu - það er víst enginn maður með mönnum nema eiga slíka síðu. Annállinn er þó mitt heimili og ég er ekkert á leiðinni að flytja - en þetta er gott til að geta skrifað fréttir tengdar einstökum greinum og ekki síður til þess að geta skrifað athugasemdir við einstaka bloggsíður.

Indjáninn

Ólafur Jóhann @ 11.48 31/3

Las í Fréttablaðinu í vikunni að Jón Gnarr hefði selt kvikmyndarétt af bók sinni Indjáninn. Þá rann upp fyrir mér að Guðni Már og Ásdís gáfu mér þessa bók í jólagjöf, en ég hafði einhverra hluta vegna aldrei lesið hana. Ég dreif mig því í því og langar mig til að hvetja alla til að lesa bókina, hún er stórskemmtileg skálduð ævisaga höfundarins og segir frá æsku hans á spaugilegan hátt. Það er þó alvarlegur undritónn í bókinni, sem gerir bókina enn betri og áhugaverðari.

Ísland - best í heimi?

Ólafur Jóhann @ 18.30 18/3 + 1 ath.

Við Íslendingar erum þess fullvissir að hér land okkar séu í hópi þeirra bestu hvað varðar búsetuskilyrði. Mengun er hér lítil, vatnið tært, þjóðin góð, börnin glöð og svo mætti lengi telja. Yfirleitt er þessum fullyrðingum skellt fram án frekari rökstuðnings og oft byggðar á tilfinningum eða þjóðerniskennd einum saman. Það er því gott og gagnlegt þegar hlutlausar rannsóknir eru gerðar á stöðunni hér á landi og þær bornar saman við stöðuna í nágrannaríkjum. Áfram…

Leiðréttingar vegna viðtals

Ólafur Jóhann @ 18.06 17/3 + 2 ath.

Hið ágæta blað, Breiðholtsblaðið kom út sl. fimmtudag og eins og samkvæmt venju var því dreift í hvert hús í Breiðholtinu. Í blaðinu var birt við mig viðtal og er ég í sjálfu sér ánægður ef störf mín vekja athygli og ánægju en ég varð þó hálf leiður er ég sá blaðið, enda hafði ýmsu verið snúið á hvolf og blaðamaður misskilið orð mín. Áfram…

Gulli Helga hættur

Ólafur Jóhann @ 17.57 16/3 + 1 ath.

Var að fletta Morgunblaðinu og sá þá að hinn eiturhressi laugardagsmorgunhani Bylgjunnar, Gunnlaugur Helgason ætlar að hætta á öldum ljósvakans. Hann er sá útvarpsmaður sem hefur verið í sérstöku uppáhaldi hjá mér, allt síðan tveir með öllu gerðu garðinn frægan semma á tíunda áratugnum þar sem þeir seldu meðal annars svörtu bókina, dagbók sem var uppfull af fyndnum bröndurum. Ég get raunar skilið það að maðurinn vilji fá helgarfrí - en vona samt sem áður að hann fái fljótt “heimþrá” í útvarpið!

Furðulegt

Ólafur Jóhann @ 15.49 2/3 + 1 ath.

Ætlaði að taka flugið til Vestmannaeyja á eftir, brottför 16.45. Kl. 15:15 fæ ég SMS - þar sem mér er tilkynnt að búið sé að aflýsa flugi til Vestmannaeyja í dag og athuga eigi næst í fyrramálið. Þetta þykir mér skrýtið, því ég veit að veðrið geti breyst mikið á einni og hálfri klukkustund og verð ég lýsa vanþóknun minni á þessa þjónustu FÍ.
Hins vegar fá þeir rós í hnappagatið fyrir að senda manni sms - en að maður þurfi ekki að vera sífellt hringjandi til að athuga stöðuna á fluginu!

Þversögn?

Ólafur Jóhann @ 10.18 2/3

Sumir eru mjög harðir á móti því að fulltrúar ákveðinna trú- og lífsskoðana fá að fara inn í skólakerfið - ættu hlest ekki að stíga fæti inn í skólabyggingarnar - og telja sig þannig vera að berjast fyrir réttindum allra nemenda. Það er skondið þegar þessir sömu einstaklingar eru mættir í menntaskólana og farnir að útbreiða sinn boðskap. Trúverðgur málflutningur hjá þessum mönnum - tja - varla!

« Fyrri færslur   Næstu færslur »

© ólafur.annáll.is · Færslur · Ummæli