Þessi varð til eftir fundinn en margir sem ég hitti höfðu orð á því að LÍÚ hefði betur setið heima en að safna þessu klappliði sínu á Austurvöll. Þar var nefnilega annar eins hópur sem mótmælti LÍÚ, sumir hljóðlega, aðrir með púi, hrópi og köllum.
Þú getur stækkað myndina með því að tvísmella á hana.
Myndin varð til þegar ég heyrði í skipsflautum sem ómuðu yfir Vesturbænum og boðuðu fólk á Austurvöll undir fána LÍÚ.
Ég mætti en ekki til að styðja málstað þeirra eða frumvörp ríkisstjórnarinnar heldur til að taka mér stöðu með RÉTTLÆTI og SANNGIRNI í þjóðfélaginu.
Þú getur stækkað myndina með því að tvísmella á hana.
·