Má bjóða þér hamingjutíma?
Sigurður Árni Þórðarson @ 22.22 1/1/12
Guð þorir. Í djúpi kristninnar er boðskapur um að Guð tekur upp á hinu óvænta og leggur sig í hættu vegna lífsins. Kristin trú er ekki átrúnaður hins læsta heimskerfis. Guð er hefur áhuga á að skapa líf en ekki kerfi. Þú mátt lifa í þeim anda, hugsa hættulegar hugsanir og þora. Má bjóða þér hamingjutíma? Prédikun á nýársdegi, 2012, er að baki smellunni.