Engill í húsi
Ég á fimm börn og þau eru gimsteinar. Þegar yngstu drengir mínir, tvíburar sem nú eru fimm ára, fæddust hafði ég næði til að íhuga hvernig börn geta breytt heiminum. Fyrstu vikurnar hleyptum við, heimilisfólkið, ekki streitu að okkur. Váleg tíðindi og vondum fréttum var haldið utan húss. Löngun að kveikja á sjónvarpsfréttum þvarr og útvarpsfréttir hljómuðu lágstemmt. Það var helst að ég fletti netmiðlum á skjánum til að skima fréttayfirlitin, þó ekki væri nema til að fylgjast með gengi minna manna í enska og spænska boltanum! Áfram…