Dóra Ketilsdóttir - minningarorð
Doja var gjafmild. Hún gaf af sér og gaf öðrum. Og svo er gjöf í nafninu hennar líka. Á grískunni þýðir dora einfaldlega gjöf, svo hún bar nafn með rentu. Gjafmildi og gjafageta einkenndi Doju – hún var Dóra – kona gjafanna í lífinu. Og hvernig er nú boðskapur kristninnar, boðskapur Jesú, skilaboð Guðs? Litla Biblían í Jóhannesarguðspjalli hljóðar svo: „Því svo elskaði Guð heiminn að hann gaf einkason til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf.“ Áfram…