Dawkins og jaðarhóparnir
Skúli @ 12.58 5/9/06
Trúr orðum mínum held ég áfram með romsuna um Dawkins og þá hópa sem ég kenndi áður við ofsatrú - en kalla nú jaðarhópa.
Þeir Vantrúarmenn eru lítið ánægðir með úthaldið mitt í síðustu rökræðum og telja jafnvel að Dawkins hafi valdið tjóni á geðheilsu minni með heimsókn sinni hingað á Klakann! Því er ég nú ekki sammála. En eðli málsins samkvæmt segir það kannske lítið..!
Nema hvað að ég finn engan vitrænan flöt á gagnrýni Vantrúarseggja á grein mína. Að mínu mati þurfa þeir að gera betur en þetta því ella liggur beinast við að álykta að sjálfur Dawkins tefli fram strámönnum í gagnrýni sinni á hófsama trúarhópa.
Í stuttu máli ganga skoðanir mínar út á það að kjarninn í þeirri ádeilu sem líffræðingurinn setur fram á trúarhópa í myndinni Root of All Evil eigi eingöngu við öfgafyllstu gerðir trúarhópa innan kristinnar trúar og islam. Allt púðrið fer í að lýsa þeim ósköpum sem finna má vestan hafs og fyrir botni Miðjarðarhafs í þeim söfnuðum sem lengst ganga í öfgum á sviði trúmála, pólitíkur og siðferðismálum.
Ég benti á það að Þjóðkirkjan og systurkirkjur hennar þurfa engu að síður að leggja eyrun við því sem hann segir um hófsama trúarhópa. Hann telur þá einmitt gefa öfgafullum söfnuðum réttlætingu fyrir afstöðu sinni með því að boða að rétt og göfugt sé að aðhyllast skoðun á öðrum forsendum en þeim sem byggja á skynsemi og rökhugsun. Af þessu mætti álykta að ákveðin tengsl séu á milli hófsamrar trúar og ofsatrúar - eða hvað á annars að segja um þessa fullyrðingu? Þarna og aðeins þarna taldi ég hann eiga raunverulegt erindi til okkar hér á Íslandi.
En ef þetta væri rétt hjá honum - ef hófsöm kirkja væri frjór jarðvegur fyrir jaðarhópa - hlyti veruleikinn á Íslandi og Norðurlöndunum að vera sá að upp úr þeim jarðvegi hefðu sprottið fjölmennir og öflugir kvistir sem settu raunverulegt mark sitt á trúarlífið í þessum samfélögum. Ég mætti honum á hans eigin heimavelli (beitti barkernum á hann!!!) og hnikaði hvergi frá ískaldri statistíkinni. Ég benti á að hlutfall jaðarhópa væri afar lítið í þeim þjóðfélögum þar sem hófsöm ríkiskirkja er við lýði.
Þótt þetta sé nú hverjum manni sem hér býr ljóst kom einnig fram í ummælum að hlutfall hinna svokölluðu jaðarhópa er hverfandi lítið á Íslandi og einnig í Svíþjóð (þar sem ég þekki aðeins til). Og það skal ítrekað að þar er talað um söfnuði sem þættu lélegt sjónvarpsefni í þátt Dawkins miðað við ósköpin sem hann bar þar fram við okkur.
Í örlæti mínu leyfði ég Vantrúarmönnum meira að segja að þrengja hugtakið ofsatrú við þá sem haldnir eru hómófóbíu eða aðhyllast vitræna hönnun (eða annað mótvægi við þróunarkenninguna) þótt ég hefði hæglega getað einskorðað málflutninginn við það ofbeldi sem blasti við í þáttunum.
Gagnrýni Vantrúarmanna var einkum á þessa leið:
- Innan þjóðkirkjunnar eru margir einstaklingar sem aðhyllast ofsatrú.
- Fullyrðingin um að hér þyrftu að vera fjölmennir jaðarhópar út frá forsendum Dawkins er röng. Nægir að líta til hjátrúar af hverjum toga sem vísbendingu um skaðleg áhrif þjóðkirkjunnar.
- Tengsl aðskilnaðar ríkis og kirkju, annars vegar, og jaðarhópa, hins vegar, eins og dæmin frá Bandaríkjunum sýna eru undantekning frá reglunni.
- Fullyrðingin um að hér þyrftu að vera fjölmennir jaðarhópar er röng. Nægir að hér séu einhverjir einstaklingar sem tilheyra slíkum hópum.
Þessi viðbrögð bera öll merki yfirklórs og karps frekar en málefnalegrar gagnrýni. Staðreyndin er sú að Dawkins dró upp hryllingsmynd af trúarhópum. í stað þess að viðurkenna það að þessir hópar heyra til undantekninga frá þeim mikla fjölda sem aðhyllist hófsama trú felldi Dawkins allt undir sama hattinn.
Staðreyndin er sú að:
- Yfirgnæfandi meirihluti Íslendinga, þjóðkirkjumanna sem annarra, er jákvæður í garð samkynhneigðra og tekur þróunarkenningunni með opnum huga. Hið sama á við um aðrar þjóðir sem byggja á sama grunni. Undantekningarnar eru til staðar en það bera að túlka þær með réttum hætti = sem undantekningar.
- Tengsl hjátrúar og þjóðkirkju eru óljósari og loðnari er svo að þau þjóni einhverjum tilgangi í þessari umræðu. En ímyndum okkurm samræðunnar vegna að sú gagnrýni eigi einhvern rétt á sér, þá blasir samt við að jaðarhóparnir sem Dawkins bendir á eru af öðrum og agressívari toga en þeir sem stunda óhefðbundar lækningar og þess háttar. Og hvernig tengist þetta skilgreiningu þeirra sjálfra á ofsatrú?
- Um tengsl trúfrelsis og ofsatrúar er erfitt að fullyrða. Kannske er það rétt og kannske ekki. Við blasir hins vegar að veruleikinn þar er allur annar en hérlendis þar sem annað kerfi er við lýði.
- Þessi afstaða jafngildir í raun samþykki við þeirri fullyrðingu minni að tengslin á milli hófsamrar þjóðkirkju og jaðarhópa eru það lítil og óljós að áhrifin sem þau hafa eru hverfandi. Fjöldi annarra skýringa kann að vera fyrir því að fámennir hópar aðhyllast slíkar trúarskoðanir.
Það skal ítrekað að hvergi reyndu þeir vantrúarmenn að draga fram jafn öfgafull dæmi hérlendis og Dawkins velti sér upp úr í þáttum sínum. Við ræddum eingöngu um miklu hófsamari og saklausari trúarhópa.
Nú kann einhverjum sem enst hefur lesturinn hingað niður að finnast sem ég endurtaki mig um of. Ég tek heils hugar undir það. Skýringin ætti þó að liggja í augum uppi.
Halldór E. @ 5/9/2026 14.09
Gagnrýni Dawkins virðist reyndar nátengd rannsóknum t.d. dr. Appleby og dr. Marty en þeir komast að þeirri niðurstöðu á rannsóknum á jaðarhópum í fjölmörgum trúarhópum í Evrópu, Asíu og Ameríku að
Þetta þekkjum við líka á Íslandi, m.a. í nýliðun Krossins og Frelsisins heitins. Eins sýnist mér þú líta framhjá Bretlandseyjum í nálgun þinni, eða hvað? Eins má spyrja um stöðu og hlutverk indre-mission hreyfinganna á hinum Norðurlöndunum.
Ég vil reyndar líka ganga svo langt að segja að þetta sem þú bendir á sem jákvæða þætti þjóðkirkjuhugsunarinnar sér í lagi hér á landi geti um leið verið hennar myllustein, þar sem frumkvæði og kraftur til félagslegs réttlætis og fræðslu er ekki til staðar í hófsömu kirkjunum.