Erindið mitt í Lundi
Á fimmtudaginn held ég til Lundar þar sem fram fer “vinnusjoppa” hjá REUNA hópnum sem grúskar í réttarsögu Norðurlandanna.
Á fimmtudaginn held ég til Lundar þar sem fram fer “vinnusjoppa” hjá REUNA hópnum sem grúskar í réttarsögu Norðurlandanna.
Vinnuhópurinn REUNA kemur saman í annað skiptið núna í haust og þá í Lundi. Þar mun ég flytja erindi sem ég kynni með þessum hætti:
Jæja, ég hendi þá inn hinni greininni minni í Kirkjuritið. Hún útskýrir sig sjálf - eða á að gera það.
Erindi mitt á ráðstefnu REUNA í Helsinki 15-17. apríl n.k. verður á þessa leið:
Verkefni mitt hófst formlega fyrir tveimur árum en frá því í október í haust hef ég getað helgað mig því svo til eingöngu. Á þessum tímapunkti má segja að það mjakist því frá hinu illræmda grautarstigi þar sem hliðsjónarrit, greinar og minnispunktar minna á seigfljótandi kekkjóttan graut á skrifborði, hörðum diski og heilabúi yfir á hið eiginlega ritunarstig þar eitthvert skipulag er á hlutunum.
Mat och religion
Föredrag om 1700 talets Islands mat och religiös tradion Áfram…
Meðfylgjandi er 20 mín. erindi sem ég flyt á hugvísindaþingi á morgun. Ég væri þakklátur fyrir alla gagnrýni!
Eftirfarandi óvissuþættir eru sýnilegir á þessu stigi málsins:
Vinnan við ritgerðina verður í grófum dráttum með þessum hætti. Tímabils sem vinnan stendur yfir er getið í sviga.
Umfjöllun um rannsóknaraðferð er tvískipt í anda sjálfs ritsins
Áætlaður ávinningur þessa verkefnis er þekkingarlegur og menningarlegur.
Rannsóknarhugmyndin felur í sér þrenns konar nýmæli umfram það sem þegar hefur verið fjallað um og gerð er grein fyrir í kaflanum um fyrri umfjöllun um efni ritgerðar
Hér verður gerð grein fyrir þekkingu og heimildum í tengslum við embættisbækur íslenskra biskupa og almennra frumrannsókna á heimildum af slíku tagi, bæði íslenskra og frá öðrum Norðurlöndum. Enn fremur verður gefið yfirlit yfir rannsóknir á Vídalínspostillu og öðrum predikunarsöfnum íslenskum.
Markmið rannsóknar er að skapa heildstæða mynd af embættismanninum og predikaranum Jóni biskupi Vídalín einum nafntogaðasta kirkjuleiðtoga íslenskrar kirkjusögu.Spurningin sem um leið er yfirskrift verkefnisins og er tekin úr sjálfri postillunni: „Hvílíkir skulu þá Krists þegnar vera?“ liggur hér til grundvallar. Hvernig leitast Jón biskup Vídalín við að stýra þegnum sínum í Skálholtsstóli með verkum sínum og hvert vill hann beina þeim með boðun sinni?