Um ummæli
Árni Svanur @ 22.45 7/8/03
Ég hef aðeins verið að velta því fyrir mér siðareglum og stefnumörkum varðandi ummæli á annálum. Á vefjum þar sem hægt er að eiga einhver samskipti verða alltaf til óskrifaðar samskiptareglur, en stundum getur verið gagn að því að ganga lengra með því að festa þessar reglur í orð.
Ég minnist þess fyrir nokkru að Derek Powazek, netsamfélagsgúru, lokaði alveg fyrir ummæli á annálnum sínum. Ef ég man rétt þá var meginástæðan sú að ummælin voru of oft meiðandi í hans garð og geymdu árásir á persónu hans.
Í vor sá ég að Mark Pilgrim er með svona ummælastefnu á sínum annál. Útgangspunktur hans (sem DP ræðir raunar líka í bók sinni Design for Community) er sá að annállinn hans er hvorki opið né lýðræðislegt umræðutorg heldur persónulegur vettvangur. Mark nefnir fernt sem getur leitt til þess að ummælum sé eytt eða strikað yfir þau með rauðu.
- Ummælum sem eru í rifrildisstíl (contain flames) eða fela í sér persónulegar árásir (ad hominem) á nafngreinda aðila eru merkt sérstaklega (hugmyndin að þessari útfærslu er upphaflega komin frá Sam Ruby). Dæmi um þetta gæti t.d. verið:
“Ég er alveg ósammála þér og þú ert ósjálfstæður heimskingi.”
sem væri merkt svona:
“Ég er alveg ósammála þér
og þú ert ósjálfstæður heimskingi.” - Ummælum sem eru í rifrildisstíl eða fela í sér persónulegar árásir á fjölskyldu annálaritarans er eytt.
- Ummælum sem ekki snerta umræðuefnið er eytt.
- Ummælum sem geyma blótsyrði er eytt.
Mér finnst þetta að mörgu leyti áhugaverð útfærsla. Það væri gaman að heyra viðhorf fleiri annálaritara til þessa máls.
Ps. Því er algjörlega stolið úr mér hvort til eru góð íslensk orð yfir “flames” og “flame war” (önnur en “að fleima” eða “flambera”). Ef einhver lumar á slíkum þá má gjarnan skilja þau eftir - slík ummæli snerta umræðuefnið og þeim verður þar af leiðandi ekki eytt
Carlos @ 7/8/2026 22.50
Gott mál (no pun intended!)