Ég prédika í árdegismessu á miðvikudaginn kemur. Morgunlestur dagsins er að finna í 11.
kafla Lúkasarguðspjalls:
Svo bar við, er Jesús var á stað einum að biðjast fyrir, að einn lærisveina
hans sagði við hann þá er hann lauk bæn sinni: „Drottinn, kenndu okkur að biðja
eins og Jóhannes kenndi lærisveinum sínum.“
En hann sagði við þá: „Þegar þér biðjist fyrir, þá segið:
Faðir,
helgist þitt nafn,
til komi þitt ríki,
gef oss hvern dag vort daglegt brauð.
Fyrirgef oss vorar syndir
enda fyrirgefum vér öllum vorum skuldunautum.
Og eigi leið þú oss í freistni.“
Biðjið og yður mun gefast
Og Jesús sagði við þá: „Nú á einhver yðar vin og fer til hans um miðnætti og segir
við hann: Vinur, lánaðu mér þrjú brauð því að vinur minn er kominn til mín úr ferð
og ég hef ekkert að bera á borð fyrir hann. Mundi hinn þá svara inni: Ger mér ekki
ónæði. Það er búið að loka dyrum og börn mín og ég komin í rúmið. Ég get ekki farið
á fætur að fá þér brauð? Ég segi yður, þótt hann fari ekki á fætur og fái honum
brauð vegna vinfengis þeirra, þá fer hann samt fram úr sakir áleitni hans og fær
honum eins mörg og hann þarf.
Og ég segi yður: Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á og
fyrir yður mun upp lokið verða. Því að hver sá öðlast sem biður, sá finnur sem
leitar og fyrir þeim sem á knýr mun upp lokið verða. Er nokkur sá faðir
yðar á meðal sem gæfi barni sínu höggorm ef það biður um fisk eða sporðdreka ef það
biður um egg? Fyrst þér, sem eruð vondir, hafið vit á að gefa börnum yðar góðar
gjafir, hve miklu fremur mun þá faðirinn himneski gefa þeim heilagan anda sem biðja
hann.“
Þarna er stefjafjöld sem verður spennandi að glíma við. Prédikunin gæti ratað á annálinn