carlos.annáll.is

AnnállFræðiHeimurSjálfiðTækni
  • Annálar

    • Annáll.is
    • Different Waters
    • Menntun 2.0
    • Stories and stuff
    • Tumi Ferrer
    • Tumi Karlsson
  • Tenglar

    • Annáll.is
    • Áföll
    • Bjöllupartar
    • Borgaskóli
    • Einelti
    • Fullorðinsfræði
    • Hraunavinir
    • Hugarkort
    • Meistaranemi
    • Mindmeister
    • Speaking of Faith
    • Vox academica
  • Eldri færslur

  • Leit

Ég ætla ekki að fyrirgefa

16.00 7/3/09 + 4 ath.

Ræða flutt á fundi Radda Fólksins á Austurvelli 7. 3. 2009

Ég ætla ekki að fyrirgefa.

Allt frá því að bankar hrundu hér á landi og víðar höfum við fengið að fylgjast með síbreikkandi gjá milli venjulegs fólks og þeirra sem stundum kallast hinir fremstu okkar á meðal. Ég ætla ekki að orðlengja um gjánna, fjölmiðlar gera sér í auknum mæli mat úr henni.

Fyrirsagnir eins og “500 milljarðar til eigenda” (og flutningur fjármagnsins í skattaskjól) eru táknmyndir ástands okkar. Fréttir af átthagafjötrum eiganda smábíls vegna skulda undirstrika hvernig komið er fyrir okkur.

Samfélag okkar er klofið í herðar niður. Annars vegar eru hér þau sem skulda og þau sem skulda meira. Við sem skuldum njótum ekki vafans. Við erum leiguþý, bundin í klafa og átthagafjötra eins og leiguliðar og vinnufólk hér á öldum áður.

Þau sem skulda meira fá að njóta alls vafans. Skuldaðu milljón og þú ert í vanda. Skuldaðu milljarð og bankinn er í vanda. Skuldaðu þúsundir milljarða og þá hverfur vandinn eins og dögg fyrir sólu. Áfram…

Þangað sækir klárinn sem hann er er kvaldastur

01.26 7/3/09 - 0 ath.

Lára Hanna, bloggvinur minn á Moggablogginu er slegin yfir þjóðarsálinni í færslu í kvöld. Hún segir (http://larahanna.blog.is/blog/larahanna/entry/821067/):

Í kvöldfréttum RÚV í gærkvöldi var sagt frá niðurstöðum skoðanakönnunar. Þar kom fram að flokkarnir tveir sem leiddu íslensku þjóðina þráðbeint til glötunar, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur, fá samtals 41,6% atkvæða. Tæpan helming. Flokkarnir sem klúðruðu velflestu í 12 ára stjórnarsetu sinni með skelfilegum afleiðingum fyrir land og þjóð.

Í tilefni af þessari niðurstöðu langar mig að biðja um álit geðlækna og sálfræðinga á íslensku þjóðarsálinni. Öldum saman hefur þessi þjóð, sem þrátt fyrir allt hafði - og hefur - svo ótalmargt til að vera stolt af og fulla ástæðu til að bera höfuðið hátt, lotið vilja einhverra(r) herra(þjóðar) og kysst vöndinn hvað eftir annað.

Ég hef hugmynd. Íslendingar hafa þurft að fást við einangrun frá umheiminum, þar með töldum siglingum, samfélagsþjónustu, trúarbrögðum, stjórnsýslu, “nefndu það” um aldir. Þeir hafa vanist harðræðinu og kvölunum.

Þangað sækir klárinn sem hann er kvaldastur.

Hann þekkir ekki annað. Englendingar þekkja þennan málshátt:

“Better the devil you know than the devil you don’t”

Sagan “Þúsund bjartar sólir” fjallar t.d. svolítið um þetta eðli okkar. Vonin felst í því að gera gott úr þeim spilum sem okkur eru gefin en sættast aldrei á að hin illa meðferð sé “stóri sannleikur”.

Þjóðin er vön að láta fara illa með sig, vænta einskis nema spillingar og sérhlífni af yfirvöldunum. Þessvegna eru mótmælin í vetur svo merkileg, af því að þar rís upp þjóð sem segir hingað og ekki lengra og kemst upp með það. Hefur áhrif.

Þetta hefur ekkert með flokkana að gera heldur með það hvernig við krefjum nágranna okkar og frændur um reiknisskil. Í meðvirkum fjölskyldum gerist það ekki fyrr en of seint. Hjá heilbrigðum kemur að því að þeim sem misbeitir valdi sínu er settur stóllinn fyrir dyrnar.

Þeir sem lifa af leita ekki í sama kvalafarið. Þeir leita á ný mið og þau eru annarsstaðar en í kvalahúsum.

Samfylkingin: sveigjanleg eða rótlaus?

10.50 27/1/09 - 0 ath.

Mér hefur fundist það styrkleiki (eða a.m.k. siðferðilega rétt) Samfylkingar að vera tilbúin að hlusta á mótmælendur. Enda margir úr Búsáhaldabyltingunni innan Samfylkingar. Þetta gerir flokkinn rótlausari en sumir hefðu viljað, en sveigjanlegri og betur tengdan grasrót þjóðarinnar en sumir geta vonað að verða að óbreyttum breytanda.

Sem kennari vinn ég stöðugt með mótspyrnu frá nemendum, sem vilja gera hlutina á eigin forsendum (eða sleppa alfarið við að gera þá). Ég hef lært, að nái ég að virkja áhuga þeirra, get ég beint þeim á slóðir sem ég tel réttar.

Stjórnmálaafl þarf að geta hlustað á fleiri en þá sem hlaupa með. Stundum verður vöxtur þegar maður tekur mótspyrnu, vinnur með henni og hugsar nýjar hugsanir. Það gerir Samfylkingin núna. Framtíðin leiðir í ljós hvort hlaupið var gönuhlaup eða til góðs.

Ég, fyrir mitt leyti, vona að stjórnmálaflokkum auðnist að verða betur tengdir við grasrótina, og að grasrótin nái að vera nógu rótföst til að láta hvaða vind rífa sig upp. Sjáum svo til hvort við fáum nýtt Ísland, nýtt lýðveldi, þar sem þjóðin hefur beinni aðgang að stjórn landsins en nú er.

Myndin er fengin frá Flickr, ToNo’s world

Upplausn Samfylkingar eða sjálfseyðing Sjálfstæðisflokks?

17.24 22/1/09 - 0 ath.

Það er því einkennilegt að sjá samfylkingarfólk, borgarfulltrúa jafnt sem alþingismenn, mæta í Þjóðleikhússkjallarann og ganga þvert gegn þessari stefnu formannsins. Engir ráðherrar voru á fundinum að sögn fjölmiðla.

Það virðist því augljóst að ráðherrar flokksins njóta ekki trausts meðal flokksmanna. Flokksmenn treysta ekki ráðum þeirra, lúta ekki leiðsögn þeirra. Er hægt að starfa með slíkum flokki? spyr Gísli Marteinn Baldursson » Blog Archive » Samfylking í upplausn.

Einfalt svar er við spurningu Gísla Marteins, og það liggur í augum uppi:

Ekki ef flokkurinn er Sjálfstæðisflokkur í sjálfseyðingarför. Flokkur sem þráfaldlega neitar að hlusta eða taka mark á vilja þjóðar, vaknar ekki fyrr en hann er orðinn að engu.

Lending á súpuskál

14.14 16/1/09 - 0 ath.

Eitt orð - Dísus!

Fengið frá veffara

Hvenær er komið að þér?

10.18 10/1/09 - 0 ath.

Hvar eru þessar tugþúsundir sem eru í viðráðanlegri fjarlægð, við sæmilega heilsu og ættu að mæta á Austurvöll klukkan 15 á laugardögum og tjá óánægju sína með nærveru sinni þar? Eruð þið í Kringlunni eða Smáralind? Heima að horfa á enska boltann eða þrífa? Í sundi eða húsdýragarðinum? Hvar eruð þið?

Lára Hanna er einn skeleggasti bloggarinn á Íslandi um þessar mundir. Hún hefur safnað og heldur til haga ógrynni sjónvarpsefnis, prentefnis og bloggfærslna um samtíma okkar. Færslan sem hér fer á eftir fjallar samfélagslega ábyrgð okkar allra. - Ó, þjóð mín þjóð - larahanna.blog.is.

Við þetta er fátt að bæta annað en með skrifum sínum minnir hún mig á Martin Niemöller, sem tók þátt í andspyrnunni við einræðisöflin í Þýskalandi á tímum þriðja ríkisins. Hann benti einmitt á að án samstöðunnar er hægt að búta okkur í smáa hópa, sem eiga fátt annað sameiginlegt en að verða viðráðanleg stærð þegar til stykkisins kemur. Nánar á http://en.wikipedia.org/wiki/First_they_came

Plögg: Ríkisstjórnir án sóma

00.01 6/1/09 - 0 ath.

Varla er hægt að reikna með því að ríkisstjórnir sem ekki gátu mætt þörfum þeirra fátækustu þegar allt var í blóma í landinu, geri það með neinum sóma þegar illa árar. - Óli Ágústar (Blogggáttin)

Með þessum orðum enduróma í mínum huga ævaforn gagnrýni atvinnumótmælenda á ríkisvaldið. Og franska orðatiltækið

plus ca change, plus c’est la meme chose
því oftar það breytist, því meir eru hlutirnir eins

á sannarlega við hér líka. Sögulaus þjóðin er dæmd til að gera sömu mistökin aftur og aftur. Hvað er þá hægt að segja um söguþjóðina, sem hefur engu gleymt, en fer jafnglannalega að sem fyrr?

De bombet det sentrale grönnsakmarkedet i Gazaby …

21.17 5/1/09 - 0 ath.

Þorbjörg frænka mín sendi þennan tölvupóst til mín áðan.

Fékk þessi skilaboð í símann minn áðan. Kann ekki að koma þeim áfram þannig svo ég geri það svona. Hvers komar heimur er þetta sem við lifum í?. Hvað er hægt að gera til að fólkð með völdin geri eitthvað af viti!! Komið þessu endilega áfram eins og þið getið.

Fra Gaza: De bombet det sentrale grönnsakmarkedet i Gazaby for to timer siden. 80 skadde, 20 drept, alt kom hit il Shifa. Hades! Vi vasser i död, blod og amputater. Masse barn. Gravid kvinne. Jeg har aldri oppleve noe saa fryktellig. Naa hörer vi tanks. Fortell videre, send videre, rop det videre. Alt. GJÖR NOE! GJÖR MER! Vil lever i historieboka naa, alle!

Mads G,

Mér finnst ástæða til þess að birta þetta hér. Ástæðan er einföld. Þótt Hamas, Fatah og Eretz Israel berist á banaspjót, þá eru þjáningar almennings raunverulegar. Þær eitt og sér ættu að vera næg ástæða til þess að við gerum eitthvað og meira til.

Minni á það, að hinum keisaralega, þýska her var fundið til foráttu í fyrra stríði, að hafa skotið fallbyssukúlum og varpað sprengjum úr loftskipum á borgir. Þá var talað um glæpsamlegt athæfi. Sama var upp á teningnum í stríði Serba og Bosníumanna í umsátrinu um Sarajevo. Menn fara ekki saklausir með sprengjukúlur og rakettur að óbreyttum borgurum.

Hreinsunareldur

01.34 14/12/08 + 1 ath.

Bankakortið brennt með öðrum táknum feðgaveldisins · mynd: Salvör

Fyrir mér eru dagar gamla Íslands og gömlu flokkana taldir. Spurning er bara hvernig þeir endurskapa sig.

Þetta er í raun óskup einfalt. Ef við höldum áfram að “sitja bara hjá og glápa” þá rísa gömlu flokkarnir upp aftur eins og Gólem eða djákninn frá Myrká. Þeirra verk verður þá að gera hlutnina eins og þeir hafa alltaf gert, allt frá Hannesi Hafstein ráðherra og bankastjóra, Jónasi úr Hriflu og nú síðast þeim Davíð, Geir, Jóni Ásgeir, Björgúlfunum og hvað þau öll heita.

Hinn möguleikinn er sá að við hjálpum þeim að brenna hið gamla og vera má að upp rísi nýr Fönix. Hvort bruninn verður heitari og meiri eða kaldari og minni, er undir varnarháttum þeirra og ákveðni okkar, sem vöknum komið. Ég er að minnsta kosti farinn að trúa að sannleikur sé í klisjunni að þjóðin fái þá stjórnendur (í víðasta skilningi - líka banka- og viðskiptastjórnendur) sem hún á skilið. Enga stofnun lýðveldisins má undan skilja, ekki ríkisstjórn, ekki Alþingi, ekki ráðuneyti, ekki banka, stórfyrirtæki og alls ekki Þjóðkirkjuna, sem er sama marki brennd og samfélagið allt - síst betri.

Ég er á því að nú er tími til að taka þátt í stjórnmálum, nýjum stjórnmálum. Sýna mótmælendum samstöðu. Ganga í stjórnmálaflokk, spurja spurninga og ef maður er beðinn að axla ábyrgð, að færast ekki undan henni. Mótmælum fylgir sú siðferðilega skylda að leita svara og standa við þau.

Einkenni nýs Íslands verður að vera hreinskilni (eða a.m.k. rekjanleiki upplýsinga), ábyrgð í merkingunni “accountability”, þar sem hægt er að draga til ábyrgðar án þess að setja í gapastokka, dreifing áhættu og dreifingu ábata.

Sjá nánar:

http://manisvans.blog.is/blog/manisvans/entry/743624/

http://kritor.blog.is/blog/kritor/entry/743345/

http://carlos.blog.is/blog/carlos/entry/743923/

Sparifjáreigendum fórnað

14.53 9/11/08 - 0 ath.

Eftir harða samninga neyðist ríkisstjórnin til að semja við Breta um sömu meðferð Íslendinga og útlendinga. Hún hefur aðeins efni á því á einn hátt: Svíkja loforð sitt um að vernda allt sparifé Íslendinga. - www.jonas.is. 8.11.2026

Ég er hræddur um að Jónas Kristjánsson muni reynast sannspár. Davíð Oddsson sagði í frægu Kastljósviðtali, að ríkið muni ekki greiða skuldir óreiðumanna. Árni M. Matthíesen innsigldi örlög Kaupþings, með lítt ígrunduðu tali á örlagastundu. Eitt símtal. Eitt sjónvarpsviðtal. Nokkrir andardrættir skildu milli feigs og ófeigs. Loose lips sink ships, sögðu Bretar í seinna stríði.

Bresku ráðherrarnir Darling og Brown voru búnir undir hið versta. Þegar stefndi í það sem þeir óttuðust, gerðu þeir íslensk stjórnvöld heimaskítmát. Ekki að ég afsaki gjörðir þeirra, þær voru óvægnar, fullar hörku. Ég skil þá hinsvegar. Málið er nefnilega, að ákveðna hluti gerir maður bara ekki.

Til dæmis, að stunda kennitölusvindl, ef maður vill halda viðskiptavinum og viðskiptavild.

Til dæmis, að mismuna eftir litarhætti, trú, stjórnmálaskoðun eða þjóðerni.

Sérstaklega ef maður er banki. Hvað er hægt að segja um gjaldþrota banka, sem greiddi sparifjáreigendum á Selfossi allt sitt, en hinum bara eftir hendinni? Ekki mjög svalt.

Íslensk stjórnvöld tróðu æru þjóðarinnar í botnlausa hít. Til hvers? Af því að sannleikurinn var of sársaukafullur þegar hann blasti við. Þeir kusu að upplýsa okkur í hómópatískum skömmtum. Halda að okkur tálsýnum. Róa á gamalkunn mið. Þetta reddast, segja þeir.

Ég held að bjartsýnistal og aðgerðir stjórnvalda undanfarna tvo mánuði séu yfirklór. Klúður og kippir sem þjóna eingöngu því að halda völdum. Hvaða vitfirringur mun nú trúa íslenskum bankamönnum? Þeir sömu komu þjóðinni á kaldan klaka með glannaskap sínum, eru enn við völd! Hver getur trúað stjórnvöldum sem sváfu á verðinum? Sem vísvitandi spilltu æru þjóðarinnar bara til að fá að sitja við völd örlítið lengur?

Íris Erlingsdóttir kallar þetta innistæðulaust oflæti, í grein í Mbl. í dag. Ég er sammála henni, þegar hún segir að íslensk stjórnvöld hafa sýnt og sannað einn hlut.

Þeim er ekki treystandi fyrir tómum sparibauk.

Ef við viljum að okkur sé treyst verðum við að sýna að við kunnum að taka sinnaskiptum. Ef núverandi banka- og stjórnvöld geta það ekki, verða þau að víkja.

Eða með orðum Ólínu Þorvaldsdóttur:

Burt með spillingarliðið, hvar í flokki sem það stendur.

« Fyrri færslur ·

© carlos.annáll.is · Færslur · Ummæli