Australia
Mikið ofboðslega er “Australia” vond mynd. Sagan klisjukennd, persónusköpun klisjukennd, myndatakan fyrirsjáanleg. Tveir og hálfur tími af væminni hetjusögu sem betur hefði farið í að lesa góða bók.
Mikið ofboðslega er “Australia” vond mynd. Sagan klisjukennd, persónusköpun klisjukennd, myndatakan fyrirsjáanleg. Tveir og hálfur tími af væminni hetjusögu sem betur hefði farið í að lesa góða bók.
Kíkti á lífsstílsplöggið hans Árna Svans. Komst að því að ég er þegar farinn að nýta mér 8 af 10 möguleikum þess að hagræða í prívatinu. Ein besta aðgerðin í þessu öllu var að hætta að nota bankakort.
Bloggheimilð annáll punktur is andaðist einhverntímann á undanförnum misserum. Jarðarför hefur ekki farið fram, enda er því haldið gangandi með prédikunum og útfararræðum þeirra annálunga sem þjónustu gegna í kirkjum sínum.
Banamein þess var líkast til bráðaofnæmi fyrir skoðanaskiptum, þreyta komst í einstaka limi samfélagsins, aðrir fluttust um set og nýliðun dó áður en hún komst á legg. Vera má að tengsl annálunga við “hann sem öllu ræður” hafi haft sitt að segja um það hvaða tónn var hér sleginn, þótt líklegra sé að störfum hlaðnir ritarar hafi ekki orku aflögu til samtals í gegnum miðil af þessu tagi. Enn ein skýring á bágri heilsu heimilisins er sú að grasið er grænna hinumegin.
Moldun frestast enn um sinn en erfidrykkja hefur líkast til farið fram, án þess að nokkur hafi áttað sig á því.
Einhvern veginn hefur mér ekki hugnast að blogga mikið í kreppunni. Ég hef hinsvegar fylgst með og sent athugasemdir í blogg vina minna á moggablogginu … það er eins og mér hugnist ekki að verða spámannlegur í eigin bloggi þegar engin þörf er á fleiri spámönnum.
Eitt verð ég þó að segja (fer í flokkinn: Told you so)
1998 stofnaði ég aukalífeyrissparnaðarreikning. Sá var í peningamarkaðshlutabréfum. Og var ágætur.
1999 ræddi ég við Björn útibústjóra. Mig minnir að ég hafi þá horft á DeCode og fleiri fara upp og niður og hugsaði mér mér: Hlutabréfaviðskipti á Íslandi? Das kann nicht gut gehen. Skipti yfir í vísitölutryggðan reikning.
Næstu ár fylgdist ég með gengi þessara reikninga, hvað sá gamli hefði gert miðað við þennan sem ég síðan valdi. Ég leyfi mér að segja að aldrei sá ég eftir að hafa skipt.
Sérstaklega ekki í fyrradag þegar ég fór inn í LÍ og gáði hvort þessar fáeinu krónur mínar voru tryggar - þær voru það, ólíkt hinum, sem hefðu farið í súginn að miklu leyti.
—
Að allt öðru. Mér fannst Matti Vantrúarformaður sleppa fullbillega með dylgjur (”dylgjublogg”) í garð meintra ofurlaunapresta sem aka um á Benz jeppum. Tók þátt í samtalinu hjá Erni Bárði og uppskar eins og ég sáði. Tilskrif Matta eru hreinasta snilld:
http://www.orvitinn.com/2008/10/29/22.45/
Ég verð að játa á mig það að hafa ekki farið úr járnglófunum þegar ég tók að strjúka honum léttilega um rök og ummælandann, uppeftir feldi … kannski honum sárni rispurnar eftir atlotin. En af hverju heldur hann að ég elski hann ekki?
—
Hér er svo ein lítil athugasemd í lokin, tekin úr bókinni “Talk to the Snail, Ten Commandments for Understanding the French” eftir Stephen Clark:
I’m amazed that the police carry out breath tests to find out ho much alcohol people have in their blood without testing for the vintage. - Olivier de Kersauson
Bókin hefur vitaskuld ellefu kafla, einn fyrir hvert boðorð.
The fat cat on the mat
may seem to dream
of nice mice that suffice
for him, or cream;
but he free, maybe,
walks in thought
unbowed, proud, where loud
roared and fought
his kin, lean and slim,
or deep in den
in the East feasted on beasts
and tender men.
[Útdráttur úr Cat eftir J. R. R. Tolkien]

Þrjátíuogtvöþúsundkall og klukkustundarferð heim úr Egilshöll
í gær voru vel þess virði. Merkilegt hvað aldursdreifingin var mikil, samt flestir á
fimmtugu. Karlinn sjálfur hálfsjötugur og lætur engan bilbug á sér finna. Tveir gallar á
tónleikunum, allir stóðu (maður þarf eiginlega að sitja undir svona gæðablús) og Ellen
var minna en sannfærandi. Hljóðið var frábært og skjáirnir tveir nauðsynlegir. Læt
fylgja eitt lag sem hann tók ekki, með “sidekick” sem kom ekki.
Leiðin til iPhone lá eins og svo margt annað frá stóru, þungu, plastdóti yfir í nýjaldarefni og visst “cool”. Mac-essentials.de birti gamla auglýsingu frá þeim tíma sem farsímar líktust drykkjarfernum, eins og einn RkÍ félaga minna komst svo vel að orði fyrir tíu árum síðan.
Eftir að ég fór að baka úr súrdeigi fór ég að líta á mjöl og kornverð í búðum og hjá heildsölum. Í ljós kemur að mjöl er ekki það sama og mjöl og korn og korn getur verið sitt hver hluturinn. Áfram…
Ég tók daginn snemma í gær, var með skálfylli af súrdeigi tilbúið til baksturs og tæpt kíló í ísskápnum sem beið eftir að vakna úr dvala. Þema dagsins var rúgbrauð, sem gerir kröftugasta og bragðmesta súrinn. Þar sem ég hef takmarkað pláss í hitakompunni til að leyfa brauðunum að hefast (30°c) og takmarkað pláss í ofninum ákvað ég að baka í tveimur lotum.
Þegar ég tek súrdeigið úr ísskáp, verður það að fá að hvíla um stund. Síðan bæti við jafnmiklu mjöli og súrdeigi (1 hlutur súr, einn hlutur mjöl), bæti volgu vatni við (hafragrautsáferð), hræri og leyfi að hvíla í 30°c í 8 klst. Næst er einum hluta mjöls hrært við súrinn og vatn, átta tíma hvíld við stofuhita. Loks er einum hluta mjöls hrært við og vatni og súrdeigið látið hvíla við 16° - 20°c í 6 tíma. Þá er súrdeigið tilbúið til blöndunar í brauðdeig eða til geymslu. Meira um það síðar. Að baksturslotunum. Áfram…

Hef verið að gera tilraunir með gerdeigsbakstur í sumarfríinu, leyft deigi að hefast
allt að sólarhring áður en ég bakaði. Þetta hefur leitt mig að því að kanna
súrdeigsuppskriftir í ýmsum kokkabókum sem eru á heimilinu og á netinu. Mér leist vel á
ensku wikibókina um efnið og best á þýska súrdeigsvefinn.
Í fljótu bragði er ekkert mál að koma af stað súrdeigi, vatn og heilhveiti, rúgmjöl eða spelt, hrært saman í vöffludeigsþykkan massa og leyft að hvíla í sólarhring. Síðan er vatni og mjöli bætt við og látið hvíla. Endurtekið nokkrum sinnum. Málið er að koma af stað ræktarlegu deigi, því eldra því betra (bragð, virkni og mótstöðuafl við óvæntum uppákomum).
Ekkert mál er að geyma það, ef ekki er bakað eða farið í sumarfrí - kæling eða þurrkun er leyfð og auðvelt að koma ræktinni af stað aftur.
Af hverju baka úr súrdeigi þegar ekkert mál er að baka úr geri? Mér sýnist súrdeigið vera öflugra en gerið og gefa annað bragð og aðra áferð - þéttara.
Af hverju að baka yfirhöfuð? 300 krónur fyrir 700 gr. af vondu stórmarkaðsbrauði / 2 kg af mjöli kostar um 200 krónur og gefur ekki minna en fjögur brauð sem fylla heimilið af ilmi og rjúka út, mygla ef geymd í plasti í tvo daga (spurning hvað er sett í iðnaðarbrauð til að þau mygli ekki!!!).
Tími fer í baksturinn, 30 - 45 mín í ofni. Kæling (furðulegt hvað hægt er að þola mikinn hita þegar nýbakað brauð er annars vegar!) og svo má ekki gleyma því að maður verður að láta hefast og hræra allt saman … Það er ástæða fyrir því að bakarar verða ekki atvinnulausir!
Mynd: wikibooks.