…vá hvað tíminn líður hratt. Ætla að fara reyna blogga reglulegar, og horfa tilbaka yfir liðin dag:
Sniðugast í dag: Ásdís fór að leysa af á æskulýðsfundi í Hallgrímskirkju í kvöld. Þá spurði ein 8.bekkingar stelpa Möggu Sverris djákna: ,,Candy flos vélin sem þið voruð með í vor, áttuð þið hana?” ,,Nei” svaraði Magga, ,,Guðni Már, maðurinn hennar Ásdísar“
Í lok fundarins var bænastund og ruglaðist einn pilturinn í Faðir vorinu, nokkrar stelpur fóru að flissa. Ásdís, kennarinn sjálfur, uppörvaði piltinn að Faðir vor-inu loknu og sagði: það er allt í lagi að maður ruglists í Faðir vor-inu, maðurinn minn er prestur og hann ruglaðist um daginn þegar hann var að skíra.
Þá sagði ein stelpan alvarlega og í algerri örvinglan: ,,Ha, á hann Candy-flosvél og er PRESTUR?”
Afrek dagsins: heftaði gíró-seðil, við Tengil fréttabréf KSH, setti í umslög og lokaði fyrir. Á morgun fer þetta í póst!
Nóa-móment dagsins: Nói bjó til setningu ,,dudda datt” (raðaði saman báðum orðunum sem hann kann
)