Arna prédikaði í Bænarý í gærkvöldi. — Tengd? 21.10 8/3
Bænarý
Árni Svanur @ 21.05 8/3 + 1
ath.
Í gær var haldin í Neskirkju margmiðlunarguðsþjónustan Bænarý. Ég þjónaði þar sem
vefprestur ásamt Óla Jóa og öflugum hópi fólks
úr æskulýðsstarfi kirkjunnar. Arna Noregsprestur prédikaði gegnum Skype, Gunni
Grafarvogsdjákni leiddi sönginn og Guðmundur Karl Digranes-margmiðlunargúrú sá um
tæknihliðina. Dagný Halla hjá ÆSKR og Gunnfríður í Neskirkju undirbjuggu
guðsþjónustuna ásamt okkur Guðmundi Karli.
Þetta var hin skemmtilegasta reynsla og tókst vel. Krakkarnir voru virkir. Það var
magnað að upplifa það í salnum þegar hundrað símar tóku á móti ritningarlestri og
blessun í sms-skeyti, bænastundin var full af lotningu og kyrrð. Ég hlakka til að
gera þetta aftur. Hægt er að skoða myndir frá Bænarý á Facebook síðu ÆSKR.
Seth Godin bloggar um hið andlega í starfi prestsins og lögfræðingsins og læknisins.
— Godin um köllunina 14.15 13/2
Börnin og bíóið
Árni Svanur @ 11.21 7/10
Sektarkennd föður sem bitnar á syni, brotið og markalaust samband móður og sonar,
skeytingarleysi móður og afbrýðisemi föður eru stef sem koma fyrir í þremur
kvikmyndum sem voru sýndar á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík í síðasta
mánuði.
Getur verið að kvikmyndagerðarmenn séu uppteknir af börnum og bágum kjörum og
sambandi þeirra við foreldra? Guðrún Karlsdóttir veltir því fyrir sér og ræðir
þessi sambönd og samskipti í góðum pistli á trú.is í dag.
Flateyjarkría
Árni Svanur @ 21.23 26/6
Þessi hóf sig til flugs í Flatey.

Hvað er gott land?
Árni Svanur @ 11.32 18/6
Ég prédikaði í árdegismessu í Hallgrímskirkju á þjóðhátíðardegi:
Morgunlestur þessa miðvikudags geymir jákvæða sýn á framtíðina. Vonarsýn. Þar
segir: „Drottinn, Guð þinn, mun leiða þig inn í gott land.“ En hvað er gott
land?
Vinabandsdagur
Árni Svanur @ 23.22 1/6
Ég prédikaði í Neskirkju í gær. Prédikunina má lesa á trú.is:
Fimir fingur fléttuðu þræðina saman. Rautt, grænt, fjólublátt band varð að
einum þræði. Ofið saman. Sterkara þannig en sitt í hverju lagi. Og svo kom
hún, og bar upp erindið, við hann. Sagði svolítið hikandi: „Ég, hérna,
fléttaði þetta handa þér. Þetta er svona … vinaband … viltu eiga það?“
Helgafell
Árni Svanur @ 09.03 23/5 +
2 ath.
Göngusumarið hófst á Helgafelli í ár. Við Davíð bróðir gengum í fallegu veðri.
Þetta er létt ganga og skemmtileg. Tilvalin túr á góðum degi. Gott að spjalla og
njóta útsýnis. Gott að vera kominn af stað

Undarlegir ávextir
Árni Svanur @ 20.41 16/5 + 6 ath.

Listahátíð í Reykjavík hefur undanfarin ár boðið upp á skemmtilegar uppákomur á
götum úti. Þetta árið eru í boði Undarlegir ávextir - Strange Fruit. Sýnt var á
Austurvelli í rjómablíðu. Mikill mannfjöldi naut sýningar fjórmenninganna sem
var í senn frumleg og skemmtileg. Eldri dóttirin áttaði sig strax á því að sagan
fjallaði um ástina. Hvað annað
Ég tók myndir.
Takk fyrir okkur!
Hræðslan, óttinn
Árni Svanur @ 17.12 5/5
Irma Sjöfn leysir af í Hallgrímskirkju í apríl og maí. Hún bauð mér að þjóna með
sér í messu á þriðja sunnudegi eftir páska sem ég þáði með þökkum. Það kom í
minn hlut að prédika og lagði til grundvallar upphaf guðspjall þessa dags, nánar
tiltekið orðin:
Hjarta yðar skelfist ekki. Trúið á Guð og trúið á mig.
Prédikunina má nú lesa á trú.is. Þar er líka hægt að hlusta á hana.
Kirkjuferðapáskar
Árni Svanur @ 08.34 13/4 + 2 ath.
Prédikunin sem ég flutti í Þingvallakirkju á páskadagsmorgni er nú komin á
trú.is:
Kirkjuferðirnar minna okkur á fjölbreytileikann, að við eigum sem samfélag að
vera opin gagnvart öðrum, taka á móti hinum ókunnugu og fjarlægu. Vera opin
gagnvart þeim sem eru öðruvísi. Þær minna okkur á boðunina, að við eigum sem
samfélag – að miðla boðskapnum áfram og – þegar svo ber við – syngja á
torgum úti svo að undir taki allt um kring.
Þar er líka fjöldi annarra prédikana sem voru fluttar á páskum.
„Hver setti Jesú á krossinn?“
Árni Svanur @ 15.10 10/4 + 3 ath.
Prédikunin mín frá því í morgun er komin í Postilluna:
„Pabbi, hver setti Jesú á krossinn?“ spurði barnið föður sinn. Fjölskyldan
var stödd í sumarfríi erlendis og hafði þennan dag heimsótt klaustur. Þar
var að finna mikið safn listaverka og ein myndanna sem varð á vegi þeirra
var altaristafla frá miðöldum. Hún sýndi krossfestinguna.
Þar eru líka fleiri prédikanir sem voru fluttar í dag.
Fyrirheitið og tilraunin
Árni Svanur @ 08.11 27/3
Árdegismessurnar í Hallgrímskirkju eru mikilvægur liður í fastri dagskra hverrar
viku. Ekki spillir fyrir að mega leggja sitt af mörkum til þjónustunnar. Á
miðvikudaginn var héldum við upp á Boðunardag Maríu og það kom í minn hlut að
prédika. Um kvöldið settist ég niður til að búa efnið til birtingar á vefnum og
gerði í leiðinni smá tilraun.
Á vefnum Christian Colleges er listi yfir og vísanir á 100 námskeið í guðfræði og
heimspeki sem eru aðgengileg á netinu. — 100
námskeið á netinu 19.48 21/1
Frumleg flétta, sjónræn fegurð
Árni Svanur @
17.51 20/1
Fléttan er frumleg og heldur manni föngnum frá upphafi til enda í þessari
ljúfsáru mynd. Í ofanálag hún sjónrænt svo falleg að mig langaði strax
til að horfa á hana aftur. Þó að maður fái sting í hjartað yfir fátækt
og mannvonsku er fegurðin ótrúleg, form, litir og tónlist. — Sigríður
Pétursdóttir um Slumdog Millionaire
Gulróta- og epla- og blaðlaukssúpa dagsins
Árni Svanur @
12.07 18/1

Þessa uppskrift rakst ég á í Morgunblaðinu. Veit því miður ekki hvenær þetta
birtist en hún fylgir viðtali við Ebbu Guðnýju Guðmundsdóttur. Í súpuna
fara:
Hálf matskeið kókosolía
Hálfur blaðlaukur
Hnífsoddur af engiferdufti
Fimm gulrætur
Eitt epli
Hálfur lítri af vatni
1 grænmetisteningur (enn betra er að búa til eigið soð)
Áfram…
Jason Kottke er einn af þeim bloggurum sem ég hef fylgst með lengi. Bloggið
hans skartar nú nýju, einföldu og aðgengilegu útliti. — Endurhönnun og einfaldleiki 09.58 18/1 + 2 ath.
Fyrir margt löngu setti ég á blað nokkra þanka um ummæli og
ummælasiðferði.
— Ummælaumræðan 22.27 14/1 + 2 ath.
Anthony Quinn og páfinn
Árni Svanur @
12.29 14/1
Um jólin var komið að mér að sjá bíómyndina sem gengið hafði
manna í millum í Digraneskirkju, og er í eigu organistans okkar,
Kjartans Sigurjónssonar. Þetta er stórmyndin Í fótspor
fiskimannsins, um prestinn og andófsmanninn Kiril Lakota,
leikinn af Anthony Quinn, sem leystur er úr haldi, fær hæli í
Vatíkaninu og verður þar páfi. — Í fótspor fiskimannsins
« Fyrri færslur
© árni.annáll.is ·
Færslur ·
Ummæli