Nú lágu Danir í því -Frækinn sigur á EM í handbolta
Sigur íslenska handboltalandsliðsins í kvöld á Evrópumeisturum Dana var ótrúlega glæsilegur. Og að þessu sinni var seinni hálfleikurinn enn betri en sá fyrri. Lokatölurnar 27-22 þýða að Íslendingar fara með sigur af hólmi úr sínum riðli. Ég er á því að það hafa skipt mjög miklu máli að fá nýjan og óþreytann mann inn í liðið. Aron Pálmarsson, aðeins 19 ára, sýndi mjög góðan leik, var leynivopn liðsins, skoraði 5 góð mörk og tók yfir hlutverk leikstjórnandans og skilaði því með mikilli prýði. Áfram…