Forsetinn hetja og Eva Joly (Holy) heilög í bloggheimum
Beygð og brotin þjóð þarf á því að halda að einhver telji kjark í hana. “Það er enginn að telja kjark í þjóðina,” sagði Davíð Oddsson á sínum tíma og með talsverðum rétti. Niðurlægð íslensk þjóð hefur beðið eftir leiðtoga. Segja má að hann hafi birst úr óvæntri átt. Ólafur Ragnar forseti hefur í afar þröngri stöðu, úthrópaður sem “klappstýra útrásarinnar”, náð vopnum sínum svo um munar og Eva Joly er hyllt sem hetja og ekki bara sem hetja heldur sem heilög kona. Áfram…