Englafræði
Hvað eru englarnir?
Því getur áreiðanlega enginn svarað til neinnar hlýtar. Þeir eru bersýnilega ekki af þessum heimi, reynsluheimi manna og annara dauðlegra skepna Guðs. Öll trúarbrögð eiga sér vitnisburð um tilveru andlegra vera á borð við engla. Guðfræðin fjallar enn um englana þó hljótt hafi verið um skeið og leitar jafnvel til trúabragðarfræði og vísindalegara athugana í þessu sambandi. Kirkjulistin hefur að sínu leyti haldið áfram allt til þessa dags að fjalla um englana svo að í raun hafa myndast víðfeðm og margbrotin englafræði. Ítrekum eitt áður en fleira er sagt: Þegar rætt er um engla erum við að fjalla um himnesk fyrirbæri, jafnvel kosmísk eða heimsfræðileg. Þessi fyrirbæri liggja að verulegu leyti utan sjónmáls mannlegrar reynslu og eru þess eðlis að þekking mannsins hefur aðeins lítilfjörlegar forsendur til þess að meta þau. Upplifun manna af þeim er því að miklu leyti huglæg og hugsun manna er engan veginn til þess fallin að ná utan um þann veruleika sem að baki fyrirbærunum stendur.
Þegar fjallað er um englana er næsta auðvelt að rata út í ævintýrin. Bæði er það að við þykjumst flest hafa hugmyndir um þá en vitum ekki hvaðan við höfum fengið þær. Sumt er etv eigin reynsla og upplifun annað það sem við höfum heyrt eða lesið einhvers staðar, en án þess að vita hvar. Svo er einkar auðvelt að missa sig í þessum efnum og fara að skálda í eyðurnar.Margt af því sem á kreiki hefur verið í englaumræðunni er grundvallarlaust og byggist á getsökum og er í eðli sínu skáldskapur, hugarheimur skapaður til þess að vera vettvangur ævintýra og drauma. Til þess að forðast að berast fyrir vindum slíkra hugmynda er nauðsynlegt að hafa fast land undir fótum.Jóhann Kalvín skrifar: Við skulum minnast þess að í allri umræðu um trúarefni skal reglan um hógværð og aðgát virt og í þessu efni skal þessa gætt: Í dularefnum sé ekki talað eða hugsað, ekki einu sinni þráð að vita meira en Guðs Orð hefur opinberað.[1] Þessi orð kirkjufræðarans er skynsamlegt að leggja sér á hjarta og hafa að leiðarljósi.Það er sannarlega rík ástæða til að finna sér traustan grundvöll til umræðu um engla og í þessari umfjöllun byggjum við fyrst og fremst á vitnisburði Biblíunnar og þær ályktanir sem við drögum verða að eiga sér stoð í því sem hún hefur fram að færa yfirleitt.[2] Þá er ekki síður ástæða til þess að gá að því að setja englana aldrei í Guðs stað, né ætla þeim að bæta skaðaða eða ófullkomna Guðsmynd nokkurs manns. Englarnir hafa ekki annað eðli en það sem Guð gaf þeim, og það er í samræmi við vilja hans sjálfs; hið góða, fagra og fullkomna. (Róm 2:12) Í Opinberunarbókinni er Jóhannesi tvisvar sagt að hann megi ekki falla fram og tilbiðja engla. (Op 19:10; 22:9) Þetta er einnig bannað í fyrsta boðorðinu (2Mós 20:3-5) og ítrekað hvað þetta varðar í Kólossubréfinu: Látið þá ekki taka af yður hnossið, sem þykjast af auðmýkt sinni og engladýrkun og státa af sýnum sínum. Þeir hrokast upp af engu í hyggju holds síns. (2:18)Hlutverk engla er að leiða athyglina að Guði og Orði hans og vera að sínu leyti farvegur náðar hans svo sem geislar sólar. Guð hjá okkur er hins vegar Kristur og hans heilnæmi andi. Hann er í aðalhlutverki, englarnir í aukahlutverkum.
En skipta englafræði einhverju máli? Sá sem leggur út í að kanna þau efni kemst ekki hjá því að opna augun fyrir nýjum og mikilvægum víddum vitnisburðar Ritninganna og hljóta að sjá ráð Guðs í stærra samhengi. Það vekur upp nýtt tilefni til þess að undrast og vegsama Guð. [3]Á okkur liggur í raun skylda í þessu efni að mati bandaríska fræðimannsins og prédikarans C. Fred Dickason: Það er kenning Ritningarinnar að [Guð] hafi skapað þessar andlegu verur og kosið að framkvæma margt í gegnum þær. Þessvegna, ef við ætlum að vera hugheilir nemendur Biblíunnar, eigum við ekki annan kost en að tala um þessar verur.[4]Við skulum því opna hug okkar fyrir boðskap Biblíunnar um engla að það megi verða okkur til trúarþroska og styrkingar.
Almennt um engla
Við setjum okkur fyrir sjónir þessa skilgreiningu: Englarnir eru andlegar verur sem Guð hefur skapað fyrir upphaf tímanna til þess að þjóna sér og framkvæma vilja sinn. Það gerir hann í Kristi og með ráðgjöf Heilags anda. (Sbr. Kól 1:16) Englar eru því hluti af sköpun Guðs en þó ekki af þessum heimi eins og við skiljum hann. Það að englarnir eru andlegar verur þýðir að þeir hafa ekki jarðneska mynd mótaða í efni. Þannig vísa þeir á hina andlega heim sem er jafnt hluti af sköpun Guðs og Jörðin og óravíddir geimsins. Englarnir hafa vart annan vilja en vilja Guðs. Þeir eru þó sagðir skapaðir með frjálsan vilja en hafa þegar í upphafi notað hann til þess að undirkasta sig í öllu vilja Guðs. Með öðrum orðum hafa þeir afsalað sér sínum frjálsa vilja. Þeir hafa það fram yfir manninn að þeir “sjá”[5] Guð og hafa því óumflýjanlega hlotið að taka afstöðu til hans frá öndverðu. Þeir fæðast ekki né deyja. Einhverjum þeirra hefur verið eða verður eytt. (Op 8:12) Þannig felur afstaða þeirra til Guðs í sér persónulega ábyrgð og staða þeirra er að eilífu mörkuð. Þeir giftast ekki og samband þeirra við allt annað markast af afstöðu þeirra til Guðs. (Mt 22:30)Öll athöfn englanna er í eðli sínu Guðsþjónusta, lofgjörð og þjónusta, og hún samverkar heilagleika hans. Þeir eru hluttakendur í dýrð hans og með honum í andstöðu og baráttu við hið illa og vanheilaga. Þetta vitnar Opinberunarbókin öll. Þeir eru þjónar hins Hæsta. (Sl 103:29)Englarnir eru börnum Guðs til aðstoðar og verndar. (Sl. 34:8) Þeir vita ekki allt og geta heldur ekki allt. (1Pét 1:12; Matt 24:36) Máttur þeirra og vitneskja er þeim skammtað af Guði eftir alvísu ráði hans. (Lk 20:35,36) Þeir hafa ekki líkama í jarðneskum skilningi þó þeir taki á sig mynd manns er þeir birtast. (Mt 11:30) Hins vegar má minnast þess sem Páll postuli segir um himneska líkami í 1Kor 15. Heimildir um birtingar engla benda til þess að þeir séu ýmiss konar eða geti tekið á sig mismunandi myndir.
Orðið engill er dregið af grísku orði (angelos) sem merkir sendiboði. Á hebresku er orðið mal´akh notað í sama skyni og felur í sér nokkurn veginn hið sama og sendiherra, þ.e. sá sem fer með umboð fyrir þann sem sendir hann og getur talað fyrir hann. (Mal 3:1)[6] Andstæða englanna eru árarnir, demónarnir (gr. daimon og táknaði í fyrstunni góðar sem illar andaverur) sem heyra til valdi hins illa.Þjóðirnar kringum austanvert Miðjarðarhaf virðast lengi hafa alið með sér hugmyndir um ósýnilegar andaverur allt frá frá því fyrir ritunartíma elstu bókahluta Gamla-testamentisins. Þar koma þær við sögu á eðilegan hátt eins og gefin fyrirbæri undir nafninu mal´akh og gegna hlutverki boðbera. Trúarbrögð Bókarinnar; Gyðingdómur, Kristni og
Islam, gera öll ráð fyrir tilveru engla. Zaraþústratrú einnig. Saddúkear mótmæltu þó allri handantilveru og einnig englunum á meðan Faríseum var títt um þá. Þeir Aristóteles og Plató gerðu ráð fyrir englum en Sókrates ekki. Einhver mesti gróðurreitur englatrúar hefur verið dulhyggjan, og eftir ritunartíma Gamlatestamentisins ekki síst gyðinglegar launhelgar ss kabbalisminn. Þar sýnist vera nóg að festa sjón á ákveðinni dyggð og bæta við -el (guð) til að tengja við Guð eða -irion (vörður) til að til að fá ný englanöfn eftir óskum. Þá hefur nýaldarhyggja, guðspeki og spírtismi mótað sér hugmyndir í þessu efni.
Biblían talar öll um engla
Englarnir eru í þýðingarmiklu hlutverki í Jobsbók, hjá Ezekíel og Daníel og sömuleiðis í Tóbitsbók. Jesús talar um engla í guðspjöllunum og þeir eru nærstaddir alla meginatburði lífs hans. Í Postulasögunni og bréfunum eru þeir tíðförulir og Opinberunarbókin er ríkulega skreytt myndum þeirra í hinum mikilvægustu hlutverkum. Í Biblíunni er greinileg þróun í englafræðinni. Í Gamlatestamentinu eru þeir því nátengdari verknaði Guðs sem heimildirnar eru eldri og sjaldan kallaðir englar. Þetta má sjá af þeirri mikilvægu frásögn sem greinir frá því að Guð heimsækir Abraham þar sem hann hefur slegið upp tjöldum sínum í Mamrelundi. (1Mós 18) Þar eru hann og þeir englar sem voru í fylgd með honum kallaðir menn.Englar koma mjög við sögu Abrahams og engill liðsinnti Hagar, verndaði Lot, eyddi Sódómu. Af ættföðurnum Jakobi eru tvær sögur sem tengjast englum. Í annari sofnar hann og sér engla Guðs ganga upp og ofan mikinn stiga sem nær til himins. (1 Mós 28) Í hinni á hann von á að mæta Esaú bróður sínum sem hann eitt sinn sveik um frumburðarréttinn og kvíður því mjög. Þá birtist honum engill Drottins sem glímir við hann náttlangt og endar glíman svo undir dagrenning að engillinn lýstur Jakob á vinstri mjöðmina svo lærleggurinn gengur úr augnkallinum og fellur Jakob þá en sleppir ekki englinum og segist ekki gera það nema engillinn blessi hann fyrst. Engillinn gerir svo og hverfur við svo búið. (1Mós 32) Þeir koma mjög við flóttann af Egyptalandi og lögmálsgjöfina í Sínaí. (2Mós) Þar kemur engill Drottins mjög við sögu, ýmist í mynd Eyðandans eða sem náttúrufyrirbrigði, eldstólpi og skýstrókur og hann herti hjarta Faraós og leiddi hann í ógæfu.Eftir því sem hátign Guðs varð meiri í augum ritendanna koma englarnir fyrir sem meðalgangarar Guðs og manna. Þeir eru mönnunum til aðstoðar og áhersla á siðgæðislegt hlutverk eykst.Margvísleg greining kemur fram á englunum í Ritningunni og eru sumir þeirra í mannsmynd á meðan aðrir hafa afar furðulegar myndir og minna jafnvel stundum fremur á tæki en menn. Í Job 1:6 og 2:1 eru englarnir kallaðir synir Guðs en varla eru þeir þó á ferð í IMós 6:1.Þar kemur fram að englar eru máttugir til þess að verja einstaklinga og hjálpa eins og sagan um Daníel í ljónagryfjunni sýnir vel (Dan 6) og Davíð rómar víða í sálmum sínum.
Englar og menn í Nýja testamentinu
Í Nýjatestamentinu er í öllum meginatriðum byggt á hugmyndum síðgyðingdómsins. Aðgreining góðra og illra engla er orðin skýr sem ekki er raunin í elstu ritum Gt. Hinir góðu englar eru þar reiðubúnir til mikillar baráttu og sýndir búa í himninum þar sem þeir þjóna Guði, lofa og tilbiðja hann og mynda hersveitir Hins hæsta. Jesús talar um engla og fallegust er auðvitað frásagan sem Mattheusarguðspjall geymir (18:10) og segir okkur með orðum Jesú sjálfs að við hvert og eitt eigum frá fyrstu bernsku verndarengil sem í senn fylgir okkur og stendur frammi fyrir Guði með málefni okkar. Þannig erum við aldrei ein og með þessa mynd í huga geta jafnvel börnin skilið hvernig Guð veit ávallt allan okkar hag. (Sl 91: 10-12)[7]Það er líka falleg frásögn í Opinberunarbókinni (8:1-4) af englinum sem ber bænir hinna trúuðu fram fyrir Guð og leggur þær á reykesisaltari sem brennur frammi fyrir Guði dag og nótt, og með þægilegum ilmi reykelsisins stíga bænir okkar upp að vitum Hans sem er hinn sami um aldir alda. Ilmurinn fullkomnar bænirnar svo þær ilma eins og þær eiga að ilma og vekja Hinum hæsta velþóknun og vilja til þess að gera svo sem beðið er. Hann veit svo í alvisku sinni og kærleika hvað okkur kemur best.Englar hafa samkvæmt Biblíunni helst áþreifanleg hlutverk þegar kraftaverk gerast; eitthvað sem er úr takt við eðlilega framvindu mála og breytir hag okkar til góðs. Engill Drottins steig öðru hverju ofan í Bethesdalaug í Jerúsalem og hrærði vatnið og sá sem fyrstur fór ofaní eftir það fékk lækningu. (Jóh 5:4) Postulasagan (12) segir frá því er engill kemur og leysir Pétur úr fangelsi. Engill birtist Ananíasi og segir honum að fara og finna Pál og gefa honum sjónina að nýju. (Post 9)Ákvarðanir sem menn taka í mikilli óvissu og reynast verða happadrjúgar bera einnig hinu sama vottinn og er í fullu samræmi við Biblíuna, samanber þegar Pál dreymir mann frá Makedóníu og tekur ákvörðun um að fara með fagnaðarerindið þangað og þar með til Evrópu. (Post 16:9-10) Þessi ákvörðun reyndist hafa sérlega veigamikla þýðingu fyrir útbreiðslu kristninnar því grísku söfnuðirnir urðu meðal hinna mikilvægustu fyrir frumkristnina.María fékk boð frá himni, þau brýnustu sem nokkur hefur fengið. (Lk 1) Gabríel birtist henni með ósk hins hæsta: Vildi hún verða farvegur Guðdómsins inn í heim mannanna? Svarið sem hann fékk að bera til baka til himna var: Sjá, ég er ambátt Drottins, verði mér eftir orði þínu. Jósef birtist engill í draumi fjórum sinnum og hann var sá gæfumaður að átta sig á mikilvægi erindis þeirra og trúverðugleika og hlýða umyrðalaust boðum engilsins.Jesús talar víða um engla. Hann talar um það hlutverk þeirra að skilja að réttláta og rangláta á Dómsdegi, (Mt 13:49) og að hann muni koma við endi tímanna í fylgd með hersveitum himnanna. (Mt 16:27; 25:31) Hann álítur englana varða mjög um hjálpræði okkar (Lk 9:26, 12:9; 15:10) og segir að þeir beri okkur við endi ævi inn til dýrðarinnar. (Lk 16:22)Í tengslum við píslir Jesú og upprisu koma englar mjög við sögu. Þeir hughreysta hann í Getsemane, (Lk 22:43) engill veltir steininum frá gröfinni, (Mt 28:2) tveir englar gæta grafarinnar (Mt 28: 5) og engill ávarpar lærisveinana þegar hann er stiginn til himins. (Post 1:11)Opinberunarbókin birtir stórfenglega himinsýn og þar eru englar í mikilvægum hlutverkum. Í henni er mikil samsvörun við bæði Daníelsbók og Spádómsbók Ezekíels og þessar eru einna mikilvægustu uppsprettur englafræðinnar og eru tryggilegast varðaðar ummælum Jesú sjálfs.
Tegundir engla
Iðulega er talað í Biblíunni um himneskar hersveitir, og eitt algengasta heiti Guðs í Gamlatestamentinu er Drottinn/Guð hersveitanna, El-Shaddaí. Hinar himnesku hersveitir vísa til hugmynda um liðskipan himneskra vera fyrir rökleiðingu af mannlegri skipan. Óvíst þó hversu langt megi leiða hugmyndir um jarðnesk efni í ályktunum um þau himnesku. Trúlegt er að ekkert jarðneskt sé í raun brúkleg ímynd til þess að hugsa sér hið himneska yfirleitt og þá englasveitirnar sérstaklega.Þessi skari er einnig nefndur öðrum nöfnum sem virðast eiga við um alla eða stóran hluta himnabúanna. Þeir eru kallaðir guðir (elóhím, Sl. 8:6;136:1), synir Guðs (Sl. 89:7-9; Job 1:6; Dan. 8:13; 1Þess 3:13), hetjur Guðs (´abbirím, Sl. 78:25; 103:20; 2Þess 1:7), hinir heilögu Guðs (kedoshím, Job 5:1), , Í Biblíunni er talað um nokkrar tegundir himnavera: Engla, kerúba, serafa, verði, verur og hjól eða hreyfingar; öldunga, hásæti, herradóma/tignir eða völd. Myndir þær sem menn sjá eru líka ólíkar og sumar óskiljanlegar.
Englar birtast mönnum jafnan í mannsmynd og oft í ljósi, lýsandi mannsmynd. Stundum svo dýrlegri að yfir tekur, og orð ná ekki til að lýsa henni.Serafar (serafím, hinir ljómandi) tengjast eldi og eru sexvængjaðir og hylja líkamai sína með fjórum vængja sinna. Þeirra er aðeins getið einu sinni í Biblíunni, við köllun Jesaja. (Jes 6) Þar er hlutverki þeirra lýst þannig að þeir flytja Guði hinn helgasta lofsöng, Þríheilagur, sem við svo notum í messunni. Þeir eru þannig sérlegt tákn um heilagleika Guðs og eru sem vörður um hásæti hans. Verurnar fjórar í Opinberunarbókinni (4:8) eru greinilega serafar. Líkama þeirra er ekki lýst í Ritningunum. Sumar hefðir vilja meina að þeir hafi slöngulíkami og tengist það notkun orðsins í hebresku í merkingunni (eitraðir-) höggormar td. í 4Mós 21:6. Í bakgrunni hugmynda Biblíunnar um Serafana eru vængjaðar verur með Assýringum og eru enn til styttur sem tákna þær.Kerúbar (karibu, (akkadíska) fyrirbiðjandi, meðalgangari) eru sagðar vængjaðar verur og þær einu sem Biblían greinir að hafi verið gerð mynd af, nefnilega á náðarstólnum, loki arkarinnar í hinu allra heilagasta musterisins í Jerúsalem. (2Mós 25:20 og 1Kron 28:11-12; Ezek 41; Heb 9:5; Op 4:7) Ezekíel sér þá í sýnum sínum (Ezek 10) og þar kemur í ljós að jafnvel hinar ljósustu sýnir eru óendursegjanlegar mannlegum skilningi. Þeir virðast standa Guði einna næst hinna himnesku vera og umkringja hásæti hans segjandi fram lof hans en fara þaðan ógnvænlegra erinda svosem Opinberunarbókin greinir. Þeir eru eins og Serafarnir verðir hátignar Dottins og bera hásæti hans. (Sl 99:1)Helgir verðir (`irín) koma aðeins fyrir í Daníelsbók (4:13, 17,23) en vekja mikið umtal í gyðinglegum og kristnum bókmenntum síðan. Líklega er hér átt við hlutverk en ekki tegund engla.Hjólin (ophanním) eru eins og flókin eldleg hreyfingarmynstur í margbrotnum litbrigðum sett augum en líkami þeirra var hulinn sjónum bak við hjólin. (Ezek 10:9ff) Erfitt er að sjá hvort þessar verur séu aðgreindar frá Kerúbunum sem Ezekíel lýsir á undan.Verur, lifandi verur (hayyoth) eru óvissrar afmörkunar. Etv englar almennt eða serafar og/eða kerúbar og koma nær eingöngu fyrir hjá Ezekíel og þar er greinilega rætt um kerúbana sem greinir nánast frá í tíunda kaflanum.
Nýjatestmentið talar um sjö flokka ósýnilegra vera: Engla, erkiengla, öldunga, hásæti og herradóma, mætti, tignir og völd, andaverur vonskunnar og heimsdrottna myrkursins:
Erkienglar, höfuðenglar (gríska, archaggeloi, enska, archangels) eru foringjar engla eða englaflokka. Gabríel og Míkael eru álitnir slíkir þó Biblían nefni það ekki. (Júd 9 og 1Þess 4:16)Öldungarnir (presbyteroi, e elders) eru nærri hásæti Guðs og ekki auðvelt að sjá hvort þeir eru ættfeðurnir og postularnir eða alfarið himneskar verur. En verkefni þeirra er að kunngjöra ráð Guðs og dóma og tilbiðja hann framfallandi. (Op 4:4; 11:16-18) Hásæti (þronoi, e thrones) eru valdsverur og líklega góðar. (Kól 1:16)Herradómar (kyriotétes, e dominations) eru valdsverur og líklega góðar og óljóst hvernig þeir greinast frá hásætunum þó þeir geri það líkega. (Ef 1: 21 Kól 1:16)Tignirnar (archais, e rulers, sovereignities) eru enn aðrar valdsverur. ( Ef 1: 21 Ef 3:10 Ef 6:12 Kól 1:16)Völd (exousai, e authority) eru enn aðrar aðgreindar valdsverur. (Ef 1: 21 Ef 3:10 Ef 6:12 Kól 1:16 1Pét 3:22)Mættir (dynameos, e power, virtues) eru sömuleiðis enn aðrar aðgreindar valdsverur. (Ef 1: 21 1Pét 3:22)[8]Heimsdrottnar (kosmokratores) sýnast vera hátt settir árar. (Ef 6:12)Andaverur vonskunnar (pnevmatika tes ponerias) sýnast sömuleiðis vera hátt settir árar. (Ef 6:12)
Sammerkt þessum flokkum engla sem hér eru taldir upp er að heitin sem þeim eru valin sýnast snúa að hlutverki þeirra fremur en tegund. Það vísar til þess að englum séu falin völd yfir þáttum himneskrar og mannlegrar tilveru þó takmörkuð séu, því ekki má gleyma því að maðurinn hefur einnig völd af ýmsu tagi sem virt eru að skikkan Skaparans.Ef við drögum þetta saman þá má álykta að þær himnesku verur sem opinberast hafa á síðum Biblíunnar séu þessar: Englar, hinn algengasti flokkur himnavera, verur sem birtast helst með mannsmynd, Serafar og Kerúbar hafa hlutverk nátengt hátign Guðs og birtast að einhverju leyti með mynd fyrirbæra úr sköpuninni og svo Árarnir, illar verur með sama uppruna og englarnir en völdu að snúa baki við Guði og fylgja hinum illa Satan. Með öðrum heitum sem andaverurnar hafa í Ritningunum er líklegast vísað til hlutverka þeirra til þjónustu við Guð með umsjón og umboðsvaldi í sköpun hans, og hvað okkur varðar sérstaklega, á jörðunni. Þessari skipan Guðs vilja hinar illu verur spilla.
Ýmsir eiginleikar engla
Englarnir eru tengdir ýmsum náttúrufyrirbrigðum ss eldi, vindi, vatni og stjörnum. Þetta minnir á náttúruvættatrú en er annars eðlis þannig að þegar þeir birtast eða eru séðir í sýnum þá tengjast þeim þessi fyrirbrigði, eins og til að sjá megi að þeir eru ofar þeim og stýra. Þess vegna má tala um veðurengla fremur en veðurguði. (Sak 6:5) Eldurinn er svo eyðandi afl og slíkt afl hafa englarnir vissulega. Sjá má meira en örla á þeirri hugmynd að stjörnurnar séu himinfyrirbæri (heavenly bodies) í andlegum skilningi sbr. ma Op.1:20.Englar eru ótölulegir og hafa komið fram margar kenningar um tölu þeirra. Sumir halda tölu þeirra ákvarðarða frá upphafi aðrir álíta að enn séu skapaðir englar.Englarnir eru ódauðlegir en ekki eilífir. Sköpun þeira markar þeim upphaf en endirinn, ef endi skyldi kalla er fólginn í því að þeir sameinast í Guðdóminum undir Syninum sem og annað skapað. (Ef. 1:10, 21; Kól 1:20)Af ritningunum má ráða að ritendur hafi hugsað sér englana hafa kyn karls ef þá nokkuð. Aðeins í seinni tíma arfsögnum koma fyrir englar með kvenkynsnöfn og kvenlega eiginleika ss Shekinah, Pistis Sophia, Namat og Lilith.
Hlutverk engla
Um það hefur nokkuð verið rakið en við getum tekið það saman sem hér greinir:
Lofsyngja nafni Guðs: Jes 6Englar þjóna Guði: Op 4Eru boðberar: Lk 1Bera bænir manna fram við Guð: Op 8Eru mönnum til aðstoðar: 1Mós 16Berjast við hlið guðsfólksins: 2Kon 19 Jes 37Framkvæma undur: Jh 5Flytja helga menn til himins: 5MósNæra einsetumenn: 1Kon 19Aðstoða menn við verk sín: Dóm 13Snúa heiðingjum: Post 8Bera látna í faðm Guðs: Lk 16Glíma við menn: 1Mós 28Englar birtast 1Mós 18Halda vörð: 1Mós 2Stýra veðrum: Sak 6Styðja kristnina: Op öllVernda þjóðirnar: Dan 12Hugga: Lk 22Berjast gegn hinu illa: Op 121Refsa illvirkjum: 4Mós 22Eyða herjum og borgum: 1Mós 19Breiða út plágur: 2Mós 8-11, Op 16Binda enda á tilveru Jarðar: Op 20
Umgengni við engla
Engla ber að umgangast í ljósi þess að þeir eru sendiboðar Guðs. Fyrirmyndir að því eigum við hjá Maríu og Jósef sem að öllu leyti tóku við boðum englanna og höguðu sér í samræmi við þau. (Lúk 1-2; Mt 1) Af þeim sögum má álykta að þeirra hreina hjarta hafi verið forsenda þess að þau gátu verið viss um að birting engilsins hafi verið raunveruleg en ekki ímyndur þeirra sjálfra. (Mt 5:8) Í öðrum tilfellum sem Ritningarnar greina ber meir á vantrú, ótta eða mótþróa sbr. Sakaría prest (Lk 1), Söru (1Mós 18), Móse (2Mós 3) og Jeremía. (1) Aðrir háðu við glímu við englana á jafningjagrundvelli eins og Abraham og Jakob. Af ýmsu má ráða að það fari eftir erindagerðum englanna hvernig ber að koma fram við þá. Stundum fylgir návist þeirra svo mikil alvara og sannfæring að þeim er hlýtt sem það væri Guð sem talar. Í öðrum tilvikum ganga þeir í einhverskonar glímu við menn eða veita þeim samfylgd eða leiðsögn og þá er eftirtektarvert að sannfæringin og ábyrgðin hverfa ekki frá manneskjunni þó engill sé á svæðinu og hún bregst við á þeim grundvelli. Heiðarleg viðbrögð sýnast ekki aðeins heimil heldur og er skylt að láta í ljósi innri efa eða sannfæringu og þá er kominn grundvöllur samskipta sem geta leit til niðurstöðu svo sem raun var hjá Jakobi Ísakssyni. (1Mós 32)Englar bera stundum með sér mikla dýrð sem vekur í senn ótta og lotningu. Ekki skyldum við samt biðja til engla sbr. Opinberunarbókina. (19:10 22:9) Þó hvetur Ambrosíus til þess og kirkjuþingið í Niceu 787 samþykkir þá háttsemi svo sem um dýrlinga væri að ræða. Ekki hefur það þó verið tíðkað mjög en þó hafa kaþólskir guðfræðingar hvatt til þess á seinni árum.[9] Við skulum hlýða aðvörun Opinberunarbókarinnar í þessu efni. Þó er rík ástæða til að þakka þá, minnast verka þeirra og heiðra hlutverk þeirra með því að halda 29. september Mikjálsmessu og allra engla svosem krisnin hefur gert um aldir.Margir hafa eins og Jósef fengið vitneskju um ókomna atburði, eða ábendingar um hvað þeim væri ætlað og sjaldnast verið auðvelt undan að víkjast og er líklegast að englar komi slíku til leiðar og sagt er að þeir geti tekið á sig mynd manna, lifandi og látinna, til þess að skapa traust á vitnisburði þeirra. En þetta geta líka árarnir og því ráðleggur postulinn okkur að prófa andana. (1Jóh 4:1)
Verndarenglar
Hugsunin um verndarengla hefur lengi verið trúuðu fólki til uppörvunar og huggunar. Jesús segir: Varist að forsmá nokkurn þessara smælingja. Ég segi yður, að englar þeirra á himnum sjá jafnan auglit míns himneska föður.(Matt. 18:10)Hér er sagt að við hvert og eitt höfum okkur sérstakan engil einn eða fleiri og ef við lítum á Postulasöguna 12:15 má álykta að lærisveinahópur frumkristninnar hafi álitið svo. Á þessum skilningi örlar kannski í Jóbsbók (33:23) þar sem talað er um árnaðarengil, talsmann. Vel má hugsa sér að þessi hugmynd hafi ávallt fylgt englatrúnni þó til þess séu fremur efnisleg líkindi en síður beinir vitnisburðir. Við megum þá kannski einnig hugsa eins og Tomas frá Akvínó og fleiri stórir kennifeður kristninnar sem litu svo á að við ættum okkur öll verndarengil um leið og við byggjum á þeirri von að fleiri englar geti komið okkur til hjálpar ef á bjátar. (Sl.91:11-12)Það er falleg hugsun að við skírnina sé okkur fenginn verndarengill til fylgdar um ævidaga okkar og hann beri bænir okkar fram fyrir Guð og miðli blessun hans á líf okkar og aðstæður, sé okkur til beinnar hjálpar og hafi á okkur áhrif til góðs, að við breytum rétt og látum ekki hið góða undir höfuð leggjast.
Nafngreindir englar
Í Biblíunni eru aðeins fjórir englar nafngreindir: Míkael, Gabríel Rafael og svo Satan. Þá er einnig minnst á Engil Drottins, sjö varðengla sem standa frammi fyrir hásæti Guðs [Skv Enoksbók eru það: Úriel, Rafael, Ragúel, Míkael, Saríel, Gabríel og Remíel] [10] og fjórar verur umhverfis það, líklegast kerúba. (Op. 15:6) Þar af leiðir sú hugmynd um að erkienglarnir séu sjö (sem er heilög tala fullnaðar) ef á þeim hefur nokkurn tíma verið föst tala. Í ritum sem standa biblíuritunum nærri koma hins vegar fyrir mörg önnur nöfn engla og í umfjöllun um engla um aldir koma fram ótal nöfn og er greinilegt að um sömu englana er rætt undir fleiru en einu nafni eftir aðstæðum. Engill Drottins (Mal´äkh-Yahweh) er næstum eins og mannbirting guðdómsins, (Gen 16:7-13; Ex 11. Ath. einnig hugsun Hebrea um corporate personality, þe staðgöngu og umboð) og virðist æðstur engla. (Sak 3:1ff; Dóm 6:11ff) Engum öðrum englum eru falin verkefni sem hans. Hann er engill návistar Guðs, persónulegur boðberi hans. (Jes 63:9) Hann kynnir Dómsdag, (Sak 3:1ff (Sjá kafla 1-6 í heild)) refsar, (2Sam 24:16) verndar hina trúu (2Kon 19:35) og glímir við Jakob. (1.Mós 32) Hann svarar ekki nafni því það er óskiljanlegt mönnum. (Dóm 13:17-18) Hann talar sem væri hann Guð: Ég er… (1Mós 31:11-13) Sumir hafa jafvel ályktað sem svo að hann sé í raun sú persóna Guðdómsins sem við þekkjum sem Jesús og Jóhannes kallar Orðið.[11] Aðrir hafa álitið að hér sé rætt um Míkael. [Önnur nöfn hans utan Ritninganna og birtingar: Haníel, Anafíel, Aríel, Metatron, og er sagður eiga tvíburabróður, Sandalphon.]Til sögu eru nefndir fjórir höfuðenglar eða erkienglar: Míkael (Mikha´el= Hver er sem Guð?) sem kemur fram í Mósebókum, (Dt 34:6 Ex 2:12) og Daníelsbók, (10:13,21; 12:1) fer fyrir hinum himnesku hersveitum. (Op12:7) Hann á messudag 29. september, Mikjálsmessa og allra engla. [Önnur nöfn hans og birtingar utan Ritninganna: Metatron, Sabbatíel, Shekinah. (Prins ljóssins), Orðið, Engill Guðs.]Gabríel (Gavri´el= Maður Guðs / Guð hefur sýnt sig máttugan) er fræðari (Dan 8;15-26; 9:21-27) og sendiboði góðra tíðinda. (Lúk 1:11-20; 1: 26-35) Hann stendur frammi fyrir Guði (Lúk 1:19) og opinberar mönnum vilja hans. [Önnur nöfn hans og birtingar utan Ritninganna: Vretíl, Gadre´el, Jibríl]Rafael ( Rafa´el = Guð hefur læknað) kemur fram sem hjálpari og leiðsagnari í Tobítsbók og kemur þar ma fram undir dulnefni sem maðurinn Azarias (3:17, - Drottinn hjálpar) og vinnur bug á djöflinum Asmodeusi. Hann er einn varðenglanna sjö (Tob 12:15; Op og er álitinn vera sá sem getið er í Op 8:3 berandi bænir manna í reykelsiskeri fram fyrir hásæti Hins hæsta. [Enoksbók getur hans einnig víða og ma í baráttunni við Azazel hinn illa engil og þar er hann kallaður engill anda mannanna og að hann muni lækna jörðina með sem hinir föllnu englar hafa sýkt.] Hann á msessudag 24. október. [Önnur nöfn hans og birtingar utan Ritninganna: Raguel, Ramiel, Azrael.][Uríel (Uri´el = Guð er ljós mitt) kemur ekki fyrir í Ritningunum. Hann birtist í 1 Enoksbók 2 og í Esdrabók (sem eru svokölluð Psevdepigrapiskt rit og standa nærri vitnisburðargrundvelli Gamlatestamentisins: 4:1; 5:20ff; 10:28) er hann einnig nefndur Fanúel og Jeremiel. Hann er tengdur eldinum og stjörnuhimninum. Í öðrum ritum er hann sá sem grefur Adam og Evu í Paradís og glímir við Jakob. Hann er þannig tendur sorginni og hryggilegum örlögum.[12] Önnur nöfn hans og birtingar utan Ritninganna: Saríel, Nuríel, Jehóel.]Satan (ákærandinn, heb. ha-satan, gr. diabolos) er oftast talinn sá illi andi sem syndahafurinn er gefinn á Friðþægingardegi gyðinga til forna. (Jóm kippur; sjá 3Mós 16) Samkv. Esek. 28:14 er hann kerúbi. Nýjatestamentið sér hann sem höfuððóvin Guðs og skýrir hlutverk hans í freistingu Evu sem skemmdarverk gagnvart Skaparanum og tilræði við manninn. (1Mós 2) Jesús segir að hann sé lygari frá upphafi (Jóh 8:44) og höfðingi illu andanna, óvinur Guðs og hefur ekkert saman við hann að sælda. (Mt 4)Nafnið Satan skýrist af því hlutverki sem hann hefur í Jobsbók 1 sem sá sem reynir Job. Engill þessi er kallaður Lúsífer (ljósgjafi/-beri, einnig notað um sjörnur) í þýðingu Vúlgötu á Jes 14:12. Hann er í Ritningunum einnig kallaður Beelsebub (Flugnahöfðinginn), Beliel, Azazel. Satan lét það veglega hlutverk sitt að bera uppi ljós heimsins stíga sér til höfuðs og hann vildi stíga öllu ofar og gera sig líkan hinum hæsta. (Jes.14:14) Því er honum steypt til Heljar þar sem auglit Guðs verður ekki séð. Samkvæmt Esekíel 28 fyllti hann sig ofríki og hroka og var varpað til jarðar.[13]Í Gyðingdómi er Satan ekki endilega illur heldur hefur hann heilagt hlutverk sem sá er prófar menn líkt og Jobsbók lýsir og minnir Guð á misferli þeirra margvíslegt í dóminum. Gamlatestamentið talar að mörgu leyti um Satan sem það væri embættisheiti [14] eins af höfuðenglum Guðs og í Jobsbók er hann í föruneyti sona Guðs. Þar er hlutverki hans líka vel lýst sem freistara sem og í 1Mós 1, þess sem Guð felur reyna að mennina. [Hann birtist í Enoksbók sem prins, erkiengill hinna föllnu engla. Hann tengist við satýrurnar í grísk-rómverskri goðafræði og það veldur frekar tengingu hans við geitur. Önnur nöfn hans og birtingar: Asmódeus, Mastema, Belíal, Shammael, Abbadon, Apolyon, Aríel, Satanaíl, Salamíel.]
Fallnir englar
Hin kirkjulega guðfræði hefur ályktað sem svo að í upphafi hafi englarnir verið skapaðir með frjálsan vilja rétt eins og mennirnir. Flestir notuðu þeir sér frelsi sitt til þess að kjósa að gera vilja Guðs að sínum. Sumir englar, kusu í upphafi að vera í sífelldri andstöðu við Guð. Þeir eru samkvæmt þessu hinir föllnu englar, árarnir, demónar. Þessu er lýst í Jesaja 12, þar sem Lúsífer, Morgunstjarnan hreykir sér upp yfir Guð, og í Esekíel 28 þar sem konunginum í Týrus er jafnað við Lúsifer og sagður hafa brugðið trúnaði við Guð og gert uppreisn gegn honum. Það er svo ályktað í síðgyðingdómi, nýjatestamentinu og kristninni að hluti englanna, allt að þriðjungur hafi svo fylgt honum.Gyðingar lesa gamlatestamentið ekki á þessa lund. Hin sígilda framsetning Gyðingatrúar hefur beint og óbeint hafnað trú á uppreisnarengla og á Djöfulinn sem sé óvinur Guðs. … Hebreska Biblían sjálf, réttilega túlkuð, gefur ekkert rúm fyrir trú á heim illra afla sem hafi skipað sér gegn gæsku Guðs. … Sögulegur kristindómur hefur aftur á móti stöðugt staðfest sífeld átök milli Guðs og Satans.[15] Þetta telja sumir stafa frá áhrifum Zaraþústratrúar á kristindóm sem og öll önnur merki tvíhyggju.Af Jesajabók 45 og Jobsbók 1 má vel sjá þessa hugsun Gamalatestamentisins og hana halda reyndar kalvínistar sig við. Hjá þeim er hið illa verkfæri í hendi Guðs til þess að ná huldum markmiðum sínum. Í gegnum traust á honum kemur vissan um að hann stýri þrátt fyrir allt öllu til góðs þó svo blasi ekki við skammsýnum augum okkar mannanna. Fyrir Jesú eru áranir fallnir englar og fá dóm drottinssvikara. Hann segir: Síðan mun hann segja við þá til vinstri handar: Farið frá mér, bölvaðir, í þann eilífa eld, sem búinn er djöflinum og árum hans. (gr aggeloi, englum) (Matt 25:41-41) Hann segir þá standa gegn vilja og ríki Guðs en þeir þekkja hann og óttast, enda hafi hann vald yfir þeim sem öllu á himni og jörðu. Þessi skilningur kemur einnig fram hjá postulunum: Ekki þyrmdi Guð englunum, er þeir syndguðu. Hann steypti þeim niður í undirdjúpin og setti þá í myrkrahella, þar sem þeir eru geymdir til dómsins. (2Pét 2:4; sbr. Júd 6; Op 19:20 ff) Þeir hafa enda þá sýn að Satan og árar hans stríði gegn Guði og vilji spilla stjórn hans á veröldinni. (Ef 6:12; 1Pét 5:8) Þeir hjóta því að fá makleg málagjöld að lokum.Í Opinberunarbókinni birtast illu öflin í ýmsum myndum. Í 9. kaflanum segir frá óskapnaði undirdjúpanna sem birtist í ofvöxnum og illúðlegum engisprettum sem höfðu yfir sér höfðingjann Abbadón. (á grísku Appóllyón = Eyðandi) Opinberunarbókin leggur hins vegar fram þann mikilvæga vitnisburð að hið illa sem og allt annað skapað og óskapað sé undir valdi Guðs sem setur því mörk og hefur á því taumhald. Þannig er ómögulegt að neitt það hendi sem Guð leyfir ekki né spilli endanlega ráði hans.[16] Kristur hefur enda séð Satan falla af himni í samræmi við sýn Esekíels. (28, Lk 10:18) Satan er alls ekki neinn guð heldur sköpun Guðs og þannig hefur Guð leyft starfsemi hans og færir hana markmiðum sínum í nyt og þær freistingar Djöfulsins sem við mætum eru prófraunir ætlaðar til þess að reyna trú okkar og traust á Guði. Við erum ekki dæmd til að falla fyrir þeim hverri og einni en öruggt að okkur verður í einhverju á og þá kemur til náðin og fyrirgefningin.Í dómi efsta dags er að lokum bundinn endir á umsvif hins illa og tilvera þess að engu gerð. Þá mun Guð vera allt í öllu. (1Kor 15:28)
Sálvísindin og englarnir
Vangaveltur sálvísindanna hafa leitt til uppástungna um það hvort englar og árar kunni að vera persóngerð göfugra og illra hneigða mannsins. Menn tengi hugmyndir sínar um athæfi og dáðir við persónur sem í raun uppfylli ekki með öllu væntingarnar sem gerðar eru til þeirra og þar af leiðandi verði fyrir frávarp með hverjum manni til hugmyndir sem englarnir og árarnir reynast heppilegri til samsvara en nokkrir menn mögulega geta. Þannig er Míkael td mun betur til þess fallinn að vera ímynd björgunarmannsins en nokkur maður, þe. þegar björgunarafrekið hefur fengið að göfgast og stækka í þakklátri minningunni. Með þessu móti er hið yfirnáttúrlega og óskiljanlega skýrt og niðurstaða fengin þó svo hún að öðru leyti gangi þvert á alla mannlega reynslu eða hugsun. Kraftverk verða af ástæðum sem ekki eru að því er virðist eðlisfræðilegar en með því að eigna þau englum þá er fengin skýring, og óskiljanleg óhöpp þá kennd árunum. Mannshugurinn hvílist ekki fyrr en fundin er einhver skýring þó langsótt sé og jafnvel þurfi að seilast í annan heim eftir þeim.Á líka lund má kenna árum þá tilfinningalegu nauðsyn að láta undan hneigð sem á sér félagslegar rætur í sameiginlegri minningu um órétt og hefna sín eða framhalda illu ferli eins og í réttlætingarskyni eða þá af knýjandi innri þörf fyrir að upplifa hryllileika ódæðisins.Þessu má svo allskostar snúa við og upp á englana. Þá verða ímyndir hins góða enn meira heillandi þá fólk vill upphefja sjálft sig og setja á stall með englunum. Enda er fátt eftirsóknarverðara en vera kallaður engill í mannsmynd.Þetta hvert tveggja táknast með hugmyndinni sem skopmyndir taka gjarnan upp af engli og púka sem skipa sæti sinn á hvorri öxl manns og eggja til góðs eða ills og svo á sá kvölina sem á völina.Þá er einnig berlegt af myndlistinni að englar og árar eru látnir birta óra og kanna hugmyndir um ómannlegar myndir, blöndu myndar dýrs og manns, ofurmannlegan mátt, eða reyna á þolmörk hugans í (ó)hugsanlegum aðstæðum.Þetta er allt gott og gilt út frá mannlegum skilningi en Biblían býður okkur hins vegar að ganga út frá raunverulegri íhutun himinsins í líf okkar mannanna og að Guð beri umhyggju fyrir okkur og láti okkur í té persónulega vernd englanna.
Englar í trúrækninni
Englar eru kirkjulistinni hugleiknir og orð- og myndlistararfurinn eiga margan fjársjóðinn í þessu efni. Þeir eru sérstaklega tíðförulir um sálma kirkjunnar og bænir barna. Byrjum á barnabænunum: Vertu yfir og allt í kringmeð elífri blessun þinni.Sitji Guðs englar saman í hringsænginni yfir minni.Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt. 511 - Matthías JochumssonTíðast er minnst á hlutverk englana í lofgjörð alls hins skapaða. Þeir koma fram sem forsöngvarar og allt annað tekur undir. Þetta er í samræmi við það sem annars staðar er lýst í þessum skrifum. Englar hæstir, andar stærstir,
allir lofi Drottins nafn.
Allt, sem andar, allt, sem lifir,
uppi, niðri, himnum yfir,
dýrki, lofi Drottins nafn. 25 - Blackie - Matthías JochumssonOg sínum Guði sigurljóð
nú syngur þessi hirðin góð,
með hjörtun trú, svo hrærð og bljúg,
í sælla engla sveim. 202 - Brorson - Stefán Thorarensen Þar er miklu víðar talað um að við tökum undir englasönginn með lofgjörð okkar, syngjum honum lof ásamt þínum englaher 29. Þeirra er getið þegar rætt er um Guð sem er yfirbjóðandi engla og þjóða 40, kóngur englanna, kóngur vor 41; til að upphefja Krist: svo hafa englar um það rætt sem endurlausnarinn væri 72; hann tigna himins herskarar 73; til að túlka helgi: engill framhjá fer 74; Þú auglit allra skærast, í upphæð vegsamað,þú yndið engla kærast 145.Sérstaklega er sálmahöfundum hugleikið hlutverk englanna í tenglum við fæðingu frelsarans og er varla sá jólasálmur að ekki sé að þeim vikið:Á himni næturljósin ljóma
svo ljúft og stillt og rótt,
og unaðsraddir engla hljóma
þar uppi’ um helga nótt.
Ó, hvað mun dýrðin himins þýða,
og hvað mun syngja englaraustin blíða?
Um dýrð Guðs föður, frið á jörð
:,: og föðurást á barnahjörð. :,: 78 Sb. 1886 - Valdimar Briem Sjá, himins opnast hlið,
heilagt englalið,
fylking sú hin fríða
úr fagnaðarins sal,
fer með boðun blíða
og blessun lýsa skal
:,: yfir eymdadal. :,: 86 - Björn Halldórsson Fjárhirðum fluttu
fyrst þann söng Guðs englar,
unaðssöng, er aldrei þver:
Friður á foldu,
fagna þú, maður,
frelsari heimsins fæddur er. Við mey þá engill mæla réð:
“Þú munt af himnum þiggja
Guðs anda gjöf; þig mun þar með
Guðs máttur yfirskyggja.
Og lífs þíns von, þinn ljúfa son,
þú lausnara skalt kalla,
hann endurleysir alla.” 573 - Valdimar Briem þýddi Kom, heilög birta, himni frá.
Kom, hersveit engla, jörðu á.
Já, kom og flyt þá fregn á ný
að fætt oss barn sé jötu í. 565 - Valdimar V. Snævarr Fjárhirðum fluttu
fyrst þann söng Guðs englar,
unaðssöng, er aldrei þver:
Friður á foldu,
fagna þú, maður,
frelsari heimsins fæddur er. 96 - Ingemann - Matthías Jochumsson Það er vert að gefa gaum litlu versi sem birtir mekilega hugsun úr 1Pét 1:12 sem að hefur verið vikið um takmörkun vitneskju og forvitni englanna:Ó, kom í hátign, Herra minn,
af hæðum fórnargjörning þinn
með undrun skoðar englaher,
sjá, augun himnesk fylgja þér. 128 - Milman - Sb. 1871 - Stefán ThorarensenÞað eru eðlileg og gömul viðbrögð að ákalla hjálp engla þegar beðið er fyrir börnum við skírn og fermingu:Ef á því hér að auðnast líf,
því undir þínum vængjum hlíf,
og engla þinna láttu lið
það leiða’ og gæta slysum við. 252 - Ólafur Guðmundsson - Valdimar Briem Guð leiði þig, en líkni mér,
sem lengur má ei fylgja þér.
En eg vil fá þér englavörð,
míns innsta hjarta bænargjörð:
Guð leiði þig. 257 – Gerok – Matthías JochumssonHugsunin um eilífa lífið laðar einnig fram myndir af englum og eru þeir í myndlistinni oft tengdir því hlutverki að hugga og styrkja í sorginni og að lokum leiða hverja sál fram fyrir lýsandi auglit Guðs:Þú ljós, sem ávallt lýsa vildir mér,
þú logar enn,
í gegnum bárur, brim og voðasker.
nú birtir senn.
Og ég finn aftur andans Fögrudyr
og engla þá, sem barn ég þekkti fyrr. 352 - Newman - Matthías JochumssonÞar sé ég sólu fegri
á súlum standa höll
í dýrð svo dásamlegri,
hún drifin gulli’ er öll.
Þar sé ég fylking fríða
og fagurbúna sveit
um ljóssins sali líða
með ljóssins ásýnd blíða
í unaðs aldinreit.Ég hljóður eftir hlusta,
ég heyri klukkna hljóm.
Hve guðleg guðsþjónusta
er Guðs í helgidóm!
Ég heyri unaðsóma
og engla skæra raust,
um Drottins dýrðarljóma,
um Drottins verk þeir róma
um eilífð endalaust.Er þetta hverful hilling
og hugarburður manns?
Nei, það er fögur fylling
á fyrirheitum hans,
er sýnir oss í anda
Guðs eilíft hjálparráð,
og stríðsmenn Guðs þar standa
við stól hins allsvaldanda.
Þar allt er eilíf náð. 440 - Valdimar Briem Og ótal klukkur ég heyri hringja
og hersing ljósengla Drottins syngja:
“Velkominn hingað heim til vor!” 720 - Tandberg - Valdimar V. Snævarr Þá eru englarnir taldir góðir fyrirbiðjendur þó svo að ekki sé þess getið í Biblíunni að englar biðji fyrir mönnum. Hins vegar að þeir beri bænir manna fram fyrir Guð:Bjartir englar betri heima,
biðjið fyrir oss.
Þú, sem fyrir þjáða bræður
þyrnikrýndur barst þinn kross,
lát oss við hann fá og finna
friðarathvarf, líknarskjól.
Miskunn veit oss, mönnum sekum,
mikli Guð, við dómsins stól. 525 - Páll V.G. KolkaVikið er víða að englum í ljóðmælum og skáldskap en það verður ekki rakið hér enda of yfirgripsmikið verkefni fyrir afmörkun þessa verks.Myndlistin elskar engla og hafa menn notað hana til þess að kalla fram hughrif og segja sögur. Myndlistin veitir höfundum líka frjálsræði sem annars staðar er vandfundið, og við skulum gera okkur grein fyrir því að hún hefur haft mikil áhrif á hugmyndir okkar um engla. Þá er þess að gæta að oft hefur þá verið seilst lengra en ábyggilegt er og oft í tómri fantasíu. Í því sambandi er vert að geta þess sérstaklega að myndlistin notar vængi englanna til þess að tákna ofurmannlega eiginleika englanna. Biblían lýsir englum aldrei svo að þeir hafi vængi. Það hafa aftur á móti serafar og kerúbar.Látum því myndlistina gleðja auga og hug en höfum takmarkað heimildargildi þeirra í huga.
Hugarheimur manna hefur stöðugt vaxið hvað ímyndir englanna varðar og upp hafa sprottið ýmis hugmyndasamhengi sem byggja á samtíningi og ímyndun einstaklings eða hóps sem hefur hrifist að hugsuninni um englana eða þá tengt hana einhverju því sem fyrir brjósti hefur verið borið.Nýaldarhreyfingar ýmsar einkennast af þessu og má í því sambandi nefna Michaels-fræðin sem eru þekkt hér á landi. Það er því úr ýmsu að velja og ekki er það allt kristilegt í sjálfu sér og sumt með öllu ósamræmanlegt kristindómi. Oft er dregið saman í kenninguna úr ýmsum áttum og blandað saman ólíkum trúarkerfum án þess að fyrir því sé haft að leita samræmingar og ógerlegt með öllu stundum að sjá neitt samhengi sumu af þessu.Þessi skrif eru samansett til þess að vera leiðarvísir eða viðmiðun um hvað má teljast kristilegt í þessum efnum. Það er og ástæða til þess að vara við því að gera sér mikið mál úr einhverju því sem úr þessum heimi er fengið né láta það rugla sig í ríminu. Heilu trúarkenningarnar eru sagðar koma fram fyrir boðun engils og má nefna Mormóna í því samhengi og vitnisburð Votta Jehóva en hvorugt teljast kristnar kirkjur af meginsamfélagi kirkna veraldar.
Englar í öðrum trúarbröðgum
Gyðingdómur og
Islam deila sama hugmyndagrunni og Kristnin um himneskar verur. Þær eru sagðar að nokkru leyti vera undir áhrifum frá Zarþústratrú Persa. Sú trú byggir á tvíhyggju og gerir ráð fyrir illum guði og góðum sem njóta fulltingis sveita engla og demóna. Af myndlist (höggmyndum) má sjá skyldleika við myndmál gamlatestamentisins en erfitt er að fullyrða hvorir sækja til hinna um fyrirmyndir. Kristni og
Islam eru hvor um sig erfingjar hugmynda gamlatestamentisins og hafa þróast hvor með sínum hætti.
Islamistar eiga td bæði Jibríl (Gabríel) og Míkal í englatali sínu og Shaytan/Satan fer fyrir árunum, og byggja þeir jafnvel á vitnisburði nýjatestamentisisns um þá. Það er einmitt Jibríl sem fer með Múhammeð til Jerúsalem í einni fyrstu vitruninni og stafar honum fyrir hluta Korans.Hin stóru trúarbrögðin: Hindúismi, Jainismi og Búddismi skoða heimin sem eina heild sem við skynjum aðeins hluta af og eiga sér ekki hugmyndir um engla. Hlutverk enganna að opinberun hulinna ímynda gegna hinar ýmsu birtingarmyndir guðanna, avatara (holdtekingar guðdómanna) í Hindúismanum, tirtanhara (spámenn) í Jainismanum og bodhisattva (tilvonandi búddar) í Búddismanum. Hinsvegar eiga þau sér öll víðtækar hugmyndir um illa anda. (Sumir eru reyndar bæði til góðs og ills eftir atvikum.) Það er og raunin með flest önnur trúarbrögð og menningarsamfélög ss Kínverja og Japani. Þar gildir að hafa illu andana til friðs með því að færa þeim fórnir í einhverri mynd.Þar sem andatrú (animismi) ríkir eru gert ráð fyrir margskonar vættum og eru sumar þeirra vel samrýmanlegar hugmyndum okkar um árana, en síður, ef yfirleitt, englunum góðu. Ekki verður rakið milli trúarkerfa að um sömu nafngreindu englana sé að ræða. Þannig þekkjast ekki þeir Míkael og Gabríel utan trúarbragða Bókarinnar, en ef til vill má finna samsömun með Satan víðar en þar.
Gagnsemi englafræðinnar
Hví skyldi Guð annars vera að skapa hinar himnesku hirðsveitir þegar hann þarfnast þeirra ekki svo vitnað sé í Kalvín: Hvenær sem Guði sýnist gengur hann framhjá engunum og framkvæmir vilja sinn með því einu að kinka kolli. Og hann ályktar svo að Guð hljóti að hafa haft okkar þarfir í huga þegar hann skapaði englana.[17] Þeir séu til hjálpar veikleika okkar svo vonir okkar megi eflast og traust okkar styrkjast. Fyrirheiti Guðs um persónulega vernd ætti að vera okkur nóg og í raun óviðeigandi fyrir okkur að leita samt eftir hjálp. Takmarkalaus gæska Guðs og umburðarlyndi leiðir Guð samt til þess að gefa okkur englana vegna veikrar trúar okkar og því sæmdi það okkur illa að horfa framhjá þessari góðsemi Guðs. (Sbr. Heb 1:14) Svo vitnað sé enn í Kalvín þá væri það vanþakklæti af okkar hálfu úr því Guð skapaði þá og opinberaði tilvist þeirra að við létum tómlega yfir því. Við ættum að taka með þökkum við þeirri þjónustu sem þeim er ætluð við trúaða og kirkju Krists og láta hana vera okkur til hughreystingar.Það er auðséð að trúin á englana getur hjálpað trúarhugsun fullorðinna og ekki síður barnanna. Þau geta átt erfitt að hugsa sér að Guð geti verið allstaðar og gætt að þeim alla stund, en að hann hafi látið þeim engil í té til verndar og þjónustu skilja þau vel.Þá skýra englafræðin tilvist hins illa og ábyrgð mannsins gagnvart Guði, sýna tign mannsins og óþrjótandi elsku Guðs til hans. Þau eru þannig tilefni hugleiðinga og örvun til bænaiðju. Það er í því ljósi háheilagt hlutskipti að standa frammi fyrir Guði í samfélagi hinna heilögu himnesku skara, hans máttugu engla í helgri tilbeiðslu sem fyrirmyndar hina komandi von eilífa lífsins.
Við getum búið okkur til nokkuð einfaldaða mynd af hlutverki engla í mannlegu lífi, hugsað okkur að fjórir af erkienglunum standi fyrir fernskonar þjónustu engla við menn hérna megin Dómsdags. Litauðgi og myndmál Biblíunnar leyfir okkur líka að tileinka þeim liti:Míkael (blár litur trúar og baráttu) stendur fyrir vernd Guðs og honum fylgja hersveitir engla sem verja guðsfólkið fyrir árásum hins illa, freistingum og hverskonar aðför.Gabríel (gulur eða gylltur litur gleðinnar) og þeir englar sem eru í fylgd hans vinna að upplýsingu anda mannsins og andlegum þroska hans og fögnuði, styrkja boðun orðsins og alla andlega leit.Rafael (rauður litur kærleikans og hins helga elds og anda) og sveitir hans eru hjálparliðar í vandræðum mannanna. Þeim tengist allt líknar og hjálparstarf, björgun og hjúkrun, líkn og lækningar.Úríel (fjólublár litur sorgar og iðrunar) og hans lið tengjast ósigri mannsins og dauða. Maðurinn er ekki skilinn eftir einn þegar öll hjálp til lífs í þessum heimi er þrotin, heldur nýtur hann engalverndar einnig þá og á það víst að vera borinn fram fyrir auglit Guðs á lokum.Verndarenglar (grænn litur vonar og vaxtar) mannanna geta verið allt ofangreint í senn eftir því sem skjólstæðingurinn þarf á að halda. Þeir fylgja okkur hvert fótmál og bera Guði vitni um hag okkar og þörf.Satan (svartur litur myrkurs og dauða) fer aftur á móti fyrir eyðingaröflunum og kemur illu til leiðar hvar sem hann kemst að. Við komumst ekki hjá prófraunum sem tengjast honum, freistingum sem leitt geta til falls og útilokunar frá himni Guðs.
Ályktanir
Hvers skyldu englarnir vera megnugir? Strax kemur í hugann að manninum er gefinn frjáls vilji og hann er gerður ábyrgur gerða sinna. Englar geta því ekki tekið fram fyrir hendur manna. - Kannski að okkur sé settur ári líka og fullkomnuð þá myndin af englinum og áranum sem sitja hvor á sinni öxl og hvísla ólíkum ráðum í eyru okkar.Segja má að andaverurnar séu einskonar flæði Guðdómsins. framrás kærleika hans og ljóssins sem frá honum stafar. Guð er persóna samkvæmt kenninum Heilgarar ritningar og því er þetta flæði jafnan, ef ekki undantekningarlaust, bundið við persónulega þjónustu að framrás kærleika Guðs in í sérhverjar aðstæður á himni og á jörðu, tjáningu innsta eðlis hans.Englarnir eiga ekkert val framar. Þeir eru þjónustubundnir andar að sögn hinnar helgu bókar og eiga ekki aðra löngun en þá að hlýða vilja Guðs. Mennirinir hins vegar bera enn þá vandmeðförnu tign gagnvart Guðdóminum að eiga rétt og möguleika til þess að játa og hafna, samanber Maríu sem ákveður að þjóna Drottni. Niðurstaða hennar er að mikla hluti hafi Drottinn gjört við hana og nafn hans hefur hún helgað fyrir sitt leyti með því að vera þjónustmær hans.Englarnir megna án vafa að hafa áhrif á líf okkar. Þeir megna að afstýra illu og koma góðu til leiðar. Þeir svosem anda á okkur eða geisla okkur kærleika Guðs og vilja að líf okkar sé að sem mestu leyti á sviði hans. Opnum því hug okkar fyrir þeim áhrifum og setjum okkur fyrir sjónar að englarnir séu bandamenn okkar og verum meðvituð um nærveru þeirra og hlut að því sem til heilla horfir fyrir okkur. Þökkum það svo Guði sem þá gaf, Drottni Jesú sem þeir hlýða.
Að lokum
Nú skal að lokum brugðið upp sýn fjárhirðanna af Betlehemsvöllum. Þeir sátu í næturkuldanum þessir handhafar einhvers óvinsælasta embættis sinnar samtíðar: að gæta fjár fyrir villidýrum og sjálfu sér. Þeim birtist um miðja nótt stórkostleg sýn. Stór og bjartur engill óvænt hjá þeim. Þeir skelfast mjög en engillinn segir: Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs. Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna ungbarn reifað og lagt í jötu. Og í sömu svipan var með englinum fjöldi himneskra hersveita, sem lofuðu Guð og sögðu: Dýrð sé Guði í upphæðum, og friður á jörðu með mönnum, sem hann hefur velþóknun á. (Lk 2:10-14) Þeir fengu að reyna að þetta var satt og fundu barnið, frelsara sinn, í fátæklegu fjárhúsi.Já, þannig hljómaði englasöngurinn á hinni helgustu nóttu og þannig hljómar hann enn í dag í nær hverri messu sem sungin hefur verið á jörðu. Látum hann enda þetta mál og vera svar okkar við ávarpi engla í hverri mynd sem það kann fyrir að koma.
Doxa en uyistois qewGloria in exelsis DeoDýrð sé Guði í upphæðum
Heimildir
Britanica online http://search.eb.com/eb/article-67474 oflDictionary of the Bible T. & T. Clark and Charles Scribner´s Sons Edinburgh 1963What Bible Says about Angels, David Jeremiah, Multinomah Publisheers, Inc. 1996Angels, God´s Secret Agents, Billy Graham, Hudder & Stoughton, 1975 2994 ed.A Dictionary of Angels by Gustav Davidson, The Free Press, C1980, Macmillan NY ISBN 0-02-907050-3 (Borgarbókasafn)Credo, Einar Sigurbjörnsson, Háskóli Íslands 1989Christian Dogmatics, Fortress Press, Philadelphia 1986
Nokkur rit um engla
The Book of Angels by Carolyn Trickey-Bapty, Halo Press C 1994 Ottenheimer Publishers, IncAngels by Renald Showers, C 1997 The Friends of
Israel Gospel Ministry, ISBN 0-915540-24-XThe Angel Book by Karen Goldman, New York: Simon & Schuster, 1992Know your Angels by John Ronner, Murfreesboro, Tennesee, Mamre Press, 1993A Handbook of Angels by H C Molenburgh, Saffron Walden, England The C W Daniel Co Ltd, 1984 Angels Elect and Evil, C. Fred Dickason Moody Press 1975Rumors of Angels, Timothy Jones, Christianity Today,April 1993Summa Tehologica, Thomas AquinasInstitutes of the Christian Religion, Johann Calvin
[1] Cf Jeremiah 23
[2] Byggt er á biblíuútgáfu 2007 að því leyti að Apókrýfubækurnar eru teknar með í þessari athugun. Aðrar tilvitnarnir eru byggðar á biblíutextanum frá 1981.
[3] Cf C F Dickason cit Jeremiah 24
[4] Cf M J Erickson cit Jeremiah 32
[5] Það að sjá hefur sjálfsagt aðra merkingu í hinum andlega heimi en hjá okkur.
[6] Malachi þýðir sendiboði minn.
[7] Heilagur Ágústínus segir í Átta spurningum að sérhver sýnilegur hlutur í þessum heimi sé undir umsjón engils.
[8] Þýðingar geta verið svolítið á reiki en grískan notar þessi orð:Ef 1: 21 archais, exousias, dynameos, kyriotétes Ef 3:10 archais, exousaiEf 6:12 archas, exousias, kosmokratoras, pnevmatika tes poneriasKól 1:16 þronoi, kyriotétes, archais, exousai 1Pét 3:22 aggeloi, exousai, dynameos
[9] Dominíkanski presturinn Pie-Raymond Régamey í What is an Angel 1960 cf Jeremiah xxiii
[10] Í þessum kafla afmarka hornklofar það sem sótt er í rit síðgyðingdómsins og seinni almennar ályktanir.
[11] Svo áleit td Jóhann Kalvín og Billy Graham, cf Jeremiah 163. Sjá 2Mós 23:20-21.
[12] Úríel er talinn með hér vegna sterkrar hefðar um nafngreiningu hans og hlutverks engla að bera hina látnu til Guðs.(Lúk 16:22 )
[13] Ritning þessi er túlkuð svo að með konunginum í Týrus sé einmitt átt við Satan.
[14] Nafn hans kemur ávallt fyrir með greini: Ákærandinn, andskotinn, ha-satan.
[15] Bernhard J. Bamberger í Fallen Angels cf. Davidson xvii
[16] Jes 45 sýnir fram á hvernig Guð getur notað hið illa lýð sínum til framdráttar.
[17] cf. Jermiah 73