jakob.annáll.is

AnnállAndleg fræðiFerðapistlarFjölskylda með fjölskylduHugleiðingarPostillaSögurUm þessa síðu
  • Annálar

  • Tenglar

  • Eldri færslur

  • Leit

Freistingar - 1.s.fö.

17.31 10/2/08


Matt 4.1-11

Dómkirkjan 17. febrúar 2001

Sætar syndir verða að sárum bótum; æ koma mein eftir munúð, segir í Sólarljóðum. Að standast freistingu merkir oftast nær það að bíða þangað til allir sjónarvottarnir eru á bak og burt, segir annar. Áfram…

Til dýrðar - síðasti sd e þrettánda

17.45 13/1/08

Texti: Markús 9:2-9
Dómkirkjan 25. nóv. 1990 kl.14 Áfram…

Stjörnu fylgt - Þrettándinn

17.03 6/1/08

Texti: I. Tím. 6: 12-16

Það er eitt megin einkenni á manninum að hann leitar. Margt finnur hann en hvert svar vekur nýjar spurningar, veitir jafnan í besta falli fullkomnari hugmynd um hvað það er sem leitað er, en ekki reynist það er hann finnur hið einhlýta svar. Og sú spurn vaknar, hvenær leit hans muni linna. Hvenær hefur hann fundið það sem hann leitar, hvenær er spurn hans fullsvarað, þorsti hans slökktur.

Áfram…

Áramót

16.20 31/12/07

Það er senn liðið þetta árið. Nokkrar stundir ótaldar og við gerum okkur mál úr því og köllum tímamót. Horfum til baka og fram á veg, íhugum og spyrjum, lokum reikningum og opnum nýja. Áfram…

Orðið varð hold - jóladagur Jóh. 1:1-14

16.20 26/12/07

Í gærvöld og nótt hefur brugðið fyrir hugskotssjónir sögunni margsögðu um umkomulausa barnið í jötunni sem var frelsari heimsins. Hún er inngróin umfram flest önnur minni mannlegrar sögu, löngu orðin hluti af okkur sjálfum og talar til okkar á sínu margslungna en einfalda máli um mikilvæga hluti tilveru okkar mannanna. Boðar okkur að himnarnir hafi opnast og sjálfur Guð komið til okkar í mynd lítils barns. Jólaguðspjallið, góðfréttin í skammdeginu dimma. Áfram…

·

© jakob.annáll.is · Færslur · Ummæli