Fjölskylda með fjölskyldu
(Hefur beðið birtingar frá því ég var í Kapengúría)
Ég hef verið að hugsa mikið um það hvernig við getum hjálpað fólkinu í Kenía í átakanlegri fátækt þess. Við stundum þróunaraðstoð sem við greiðum með skattpeningunum okkar og við erum með í Rauðakrossinum og
Hjálparstarfi kirkjunnar. Sum leggja fram talsvert fé til kristniboð og sumir sýna mikla fórnarlund. En meira má ef duga skal, og hér er eindregið hvatt til þess að fé til þróunaraðstoðar sé aukið stórlega og almenningur láti mun meira fé af hendi rakna til þeirrar aðstoðar sem hér hefur verið nefnd. Það er sannarlega árangursríkt og aðgegnilegt. Áfram…