jakob.annáll.is

AnnállAndleg fræðiFerðapistlarFjölskylda með fjölskylduHugleiðingarPostillaSögurUm þessa síðu
  • Annálar

  • Tenglar

  • Eldri færslur

  • Leit

Kominn heim

Jakob Ágúst Hjálmarsson @ 17.45 11/2

Kominn heim úr fríi er ég tekin til við ritstörf. Ég er sannarlega að vona að ég muni fara til starfa í Keníu áður en langt líður. Það er komin hreyfing á okkar fólk þar og heldur bjartara yfir. Ég læt vita af því hvernig mál þróast.

Ég er að skrifa svolítið til yfirlits um englafræði, ítarlegra en það sem ég hef birt áður. Mikill frumskógur þar sem eru álit manna í þeim efnum. Ég held mig við Biblíuna og álykta út frá því sem þar stendur. Aðra afmörkun get ég ekki hugsað mér né get farið út í annað. Svo “óstöðugur” sem ég er mundi ég ærast.

Freistingar - 1.s.fö.

Jakob Ágúst Hjálmarsson @ 17.31 10/2


Matt 4.1-11

Dómkirkjan 17. febrúar 2001

Sætar syndir verða að sárum bótum; æ koma mein eftir munúð, segir í Sólarljóðum. Að standast freistingu merkir oftast nær það að bíða þangað til allir sjónarvottarnir eru á bak og burt, segir annar. Áfram…

Per tempore

Jakob Ágúst Hjálmarsson @ 22.11 22/1

Eins og á stendur þá er ég óvirkur hérna á annálnum. Ferð til Kenía frestast fram á páska amk vegna ófriðar og ég bregð mér í frí fram undir miðjan febrúar.

Til dýrðar - síðasti sd e þrettánda

Jakob Ágúst Hjálmarsson @ 17.45 13/1

Texti: Markús 9:2-9
Dómkirkjan 25. nóv. 1990 kl.14 Áfram…

Um þessar síður

Jakob Ágúst Hjálmarsson @ 17.01 8/1

Lestu þetta
Áfram…

Stjörnu fylgt - Þrettándinn

Jakob Ágúst Hjálmarsson @ 17.03 6/1

Texti: I. Tím. 6: 12-16

Það er eitt megin einkenni á manninum að hann leitar. Margt finnur hann en hvert svar vekur nýjar spurningar, veitir jafnan í besta falli fullkomnari hugmynd um hvað það er sem leitað er, en ekki reynist það er hann finnur hið einhlýta svar. Og sú spurn vaknar, hvenær leit hans muni linna. Hvenær hefur hann fundið það sem hann leitar, hvenær er spurn hans fullsvarað, þorsti hans slökktur.

Áfram…

Byr skal ráða

Jakob Ágúst Hjálmarsson @ 17.50 3/1

Ekki fer ég á morgun. Tilvonandi samstarfsfólk mitt í Kapengúría í Pókot fór í gær 2. jan í lögreglufylgd til Eldoret og flaug þaðan til Nairobi til að tryggja öryggi sitt. Aðrir starfsmenn Norsk Luthersk Mision (NLM) í Keníu voru einnig boðaðir í svæðisstöðina í Nairobi vegna ástandsins í landinu. Ég var beðinn um að doka við. Við Ragnar og Skúli í SÍK ákváðum að fresta för minni um tíu daga. Ef ekki væri farið að skipast til betri vegar þá yrði ástæða til mun lengri tafar.

Áfram…

Á förum?

Jakob Ágúst Hjálmarsson @ 08.23 2/1

Nú þegar að því er komið að leggja í hann til Afríku er allt í óvissu. Átök hafa brotist út í Keníu og viðsjár með mönnum. Í dag ætla ég a grennslast fyrir um ástandið og hafa samband við þau sem ég á að starfa með. Áfram…

Áramót

Jakob Ágúst Hjálmarsson @ 16.20 31/12

Það er senn liðið þetta árið. Nokkrar stundir ótaldar og við gerum okkur mál úr því og köllum tímamót. Horfum til baka og fram á veg, íhugum og spyrjum, lokum reikningum og opnum nýja. Áfram…

Orðið varð hold - jóladagur Jóh. 1:1-14

Jakob Ágúst Hjálmarsson @ 16.20 26/12

Í gærvöld og nótt hefur brugðið fyrir hugskotssjónir sögunni margsögðu um umkomulausa barnið í jötunni sem var frelsari heimsins. Hún er inngróin umfram flest önnur minni mannlegrar sögu, löngu orðin hluti af okkur sjálfum og talar til okkar á sínu margslungna en einfalda máli um mikilvæga hluti tilveru okkar mannanna. Boðar okkur að himnarnir hafi opnast og sjálfur Guð komið til okkar í mynd lítils barns. Jólaguðspjallið, góðfréttin í skammdeginu dimma. Áfram…

« Fyrri færslur   Næstu færslur »

© jakob.annáll.is · Færslur · Ummæli